Um klúbbinn

Stjórn West Ham klúbbsins á Íslandi er þannig skipuð 2008-2009

Sigþór Eiríksson, formaður.  Netfang: sigthor@hive.is

Helena Valtýsdóttir, varaformaður. Netfang: helena@fva.is

Erling Þór Pálsson, meðstjórnandi.  Netfang: lindasia@simnet.is

Bjarni Sighvatsson, meðstjórnandi.  Netfang: bjarnisighvatsson@com.is

Karl Símon Helgason, meðstjórnandi.  sími:  461 1236

 

 

West Ham United var upphaflega \\\"Thames Ironworks\\\" klúbbur málmverksmiðjumanna sem stofnsettur var af eiganda verksmiðjunnar. Í byrjun 20. aldarinnar tók liðið upp atvinnumennsku og breytti nafninu í West Ham United.
West Ham hefur ævinlega litið á sig sem lið verkamanna þótt nú orðið sé fótbolti orðin æði kostnaðarsöm íþrótt. Ekki einungis fyrir félögin sjálf heldur oft líka fyrir stuðningsmenn því það er dýrt að fara á völlinn og að kaupa ýmsan útbúnað sem sönnum stuðningsmönnum finnst nauðsynlegt að eiga. West Ham er þó enn fyrst og fremst félag Austurbæinga í London þótt það eigi ótrúlega stóran stuðningsmannahóp um víða veröld þegar litið er til gengis félagsins undanfarin ár.

Við höfum ekki unnið til margra verðlauna. Það er ekki þess vegna sem við höldum með West Ham. Það er auðvitað gaman að vinna en við gerum okkur sjaldnast gyllivonir um titla. Ef við vildum bara vera í sigurliðinu héldum við öll með ManU eða Liverpool. Við stærum okkur hins vegar af því að vera tryggir stuðningsmenn (sumir vilja segja tryggustu stuðningsmennirnir) og stöndum með okkar mönnum í blíðu og stríðu. Til marks um það er svo að segja alltaf uppselt á Boleyn Ground hvernig sem gengi liðsins annars er þannig að sennilega er kominn tími á að byggja stærri völl (sem mér skilst að sé ætlunin).

West Ham United hefur ævinlega þótt leika skemmtilegan sóknarbolta og hefur þá sjaldan skipt máli hvort liðið er í baráttu um verðlaun eða fall. Mesta velgengnistímabil félagsins var um miðbik 7. áratugarins þegar það komst þrisvar í röð í úrslit í FA bikarnum. Þeir unnu bikarinn 1964 og ári síðar í Evrópukeppni bikarhafa. Í liðinu þá voru Bobby Moore, Geoff Hurst og Martin Peters sem ári síðar voru í sigurliði Englendinga um heimsbikarinn sjálfan. Það má eiginlega segja að Hamrar hafi leikið öll aðalhlutverkin í þeim leik. Moore var fyrirliði, Hurst skoraði 3 mörk og Peters 1 en leikurinn fór 4-2 enda segjum við oft að West Ham hafi unnið heimsbikarinn 1966. (Fyrir þá sem ekki vita þá voru Þjóðverjar silfurliðið).

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun