5. september 2010 | Sigþór B. Eiríksson

Thomas Hitzlperger frá í tvær vikur í viðbót

Thomas Hitzlperger sem meiddist í landsleik Dana og Þjóðverja nokkrum dögum áður en keppnistímabilið hófst um miðjan ágúst á enn við meiðsli að stríða og missir af leiknum gegn Chelsea um næstu helgi. En það er hugsanlegt að hann verði tilbúinn í leikinn gegn Stoke 18.september.

Annar leikmaður sem hefur átt við langatímameiðsl að stríða er Jack Collison, en hann er á ágætis batavegi og er talið að hann gæti mætt til leiks í desember.

Nígerðiski framherjin Victor Obinna sem kom að láni frá Inter Milan á dögunum verður væntanlega í leikmannahópnum gegn Chelsea um næstu helgi. Einnig er talið Tal Ben-Haim verði í leikmannahópnum auk þeirra Winston Reid og Lars Jacobsen.

Nokkrir leikmenn West Ham hafa verið að leika með landsliðum sínum um helgina. Matthew Upson og Carlton Cole voru í enska landsliðshópnum en komu ekki við sögu í 4:0 sigri  Englendinga gegn Búlgörum. Tal Ben-Haim lék allann leikinn með Ísraelsmönnum í 3:1 sigri gegn Möltu og Valon Berhami lék með Svisslendingum í markalausu jafntefli gegn Áströlum.

 

1. september 2010 | Sigþór B. Eiríksson

Lars Jacobsen og Ruud Boffin koma til West Ham

Danski hægri bakvörðurinn Lars Jacobsen og belgíski markvörðurinn Ruud Boffin gengu til liðs við West Ham skömmu áður en leikmannaglugginn lokaði í gær.

Jacobsen, sem er þrítugur að aldri kom á frjálsi sölu frá Blackburn og gerði eins árs samning. Hann er fastamður í danska landsliðinu og lék alla leikina þrjá með Dönum á HM í S-Afríku í sumar. Jacobsen hóf ferlinn í Árósum og fór þaðan til  Hamburger SV í Þýskalandi og þá til FC Köbenhavn, síðan aftur til Þýskalands og nú til Nurnberg. Everton keypti hann síðan fyrir tveimur árum en lék lítið þar sökum meiðsla og fór til Blackburn fyrir ári síðan.

Ruud Boffin er 22 ára gamall Belgi og kemur frá hollenska liðinu Maastricht og gerði tveggja ára samning við West Ham eftir að hafa verið til reynslu hjá félaginu.

31. ágúst 2010 | Sigþór B. Eiríksson

Fabio Daprela seldur til Brescia

West Ham seldi í dag svissneska U-21 árs landsliðmanninn Fabio Daprela til Brescia á Ítalía. Hinn 19 ára gamli Daprela samdi til fimm ára við ítalaska liðið.

Í dag var síðasti dagurinn fyrir leikmannaskipti þar til 1.janúar n.k. Ekkert gerðist hjá West Ham, en þó er talið líklegt að West Ham fái varnarmanninn Lars Jackobsen lánaðan frá Blackburn. En það á eftir að koma í ljós.  En fullyrt var að Liverpool hefði boðið í Carlton Cole og boðið Ryan Babel í skiptum, en ekkert varð úr því. Sömu sögu var að segja Scott Parker ekkert varð úr sölu hans til Tottenham. Þannig að það má segja að góður frétttirnar er að allir skástu leikmenn liðsins verða áfram hjá félaginu.

Í viðtali sem Sky fréttastofan átti við Avram Grant eftir að leikmannaglugginn lokaðist sagði hann að West Ham hefði reynst að fá nokkra leikmenn að láni en það hefði ekki gengið upp, nema þá með Lars Jockobsen ef það gengi. Hann sagði að ekkert tilboð hefði komið frá Tottenham í Scott Parker en staðfesti að Liverpool hefði sýnt Carlton Cole áhuga og Ryan Babel hefði verið nefndur í skiptum en ekkert orðið úr því. Hann sagði að ein ástæða þess að West Ham hefði ekki getað fjárfest í nýjum leikmönnum var að félagið fékk ekki fyrirgreiðslu hjá viðskiptabönkum sínum vegna fjárhagstöðu félagsins.

29. ágúst 2010 | Sigþór B. Eiríksson

Avram Grant segir að nú þurfi þolimæði

Avram Grant stjóri West Ham sagði eftir tapið gegn Manchester United í gær að stuðningsmenn West Ham þurfi að vera þolimóðir þrátt fyrir afleita byrjun á mótinu. Þeir leikmenn sem væru nýkomnir til félagsins þurfi að aðlagast og það ætti eftir að koma. Auk þess væri Tomas Hitslsperger meiddur og Victor Obinna sem kom að láni frá Inter Milanó á föstudaginn ekki elveg tilbúnir ennþá. En hann vonaðist til þess að þeir yrðu klárir gegn Chelsea eftir tvær vikur, en nú tekur við landleikjahlé um næstu helgi. Grant sagði að hann hefði verið ánægður með leik liðsins framan af og Manchester United hefði fengið fá marktækifæri þar til þeir fengu vítaspyrnuna á 33.mínútu og sagðist hann ekki vera viss um að um vítapyrnu hefði verið að ræða.

Orðrómurinn um að Scott Parker fari til Tottenham áður en leikmannaglugginn lokar á miðnætti n.k. þriðjudag hverfur ekki. Talið er að Tottenham sé tibúið til að borga 8 milljónir sterlingspunda fyrir leikmanninn. West Ham hefur boðið honum nýjan samning sem færir 75.000 sterlingspund á viku en hann er ekki búinn að skrifa undir ennþá.

Þá er orðrómur í gangi að Livrpool hafi mikinn áhuga á Carlton Cole og vilji bjóða West Ham ákveðna upphæð og val um annað hvort Ryan Babel eða Lucas upp í kaupin

Umboðsmaður hægri bakvarðarins Gay Demel, sem leikur með Hamborg sagði í morgun að West Ham hafi boðið 1.75 milljón sterlingspunda í leikmanninn. Demel er landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar og er 29 ára gamall.

Avram Grant sagði að West Ham muni reyna að fá a.m.k. tvo nýja leikmenn til liðsins áður leikmannagluggin lokar á miðnætti á þriðjudag.

 

Eldra efni

28. ágúst 2010 Pínlegt !
27. ágúst 2010 Manchester United - West Ham United: Spá
25. ágúst 2010 Verður Carlton Cole seldur ?
24. ágúst 2010 Naumur sigur gegn Oxford United
24. ágúst 2010 Alessandro Diamanti seldur til Brescia

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun