
Gianluca Nani segir framtíðina bjarta hjá West Ham.
23. apríl 2008 | 01:12:19
Í ítarlegu viðtali í "The Official Matchday Magazine" nýlega segir Gianluca Nani nýráðinn tæknilegur framkvæmdarstjóri hjá West Ham frá framtíðaráætlunum sínum. Hann er reyndar nú þegar byrjaður að starfa með Curbishley og fór Curbs nýlega til Ítalíu til viðræðna við Nani.
Nani byrjar á því að segja frá sjálfum sér og er hann fæddur í Róm og fékk snemma mikinn áhuga á knattspyrnu og átti sér draum um að verða atvinnuknattspyrnumaður en náði aldrei á þann stall. Í stað þess náði hann sér í þjálfararéttindi og tók að sér þjálfun hjá áhugamannaliðum á Ítalíu og starfaði við það næstu fimm árin. Eftir þessi ár fluttist hann til Spánar og tók m.a að sér að skipuleggja knattspyrnumót fyrir lið frá norður Evrópu. Í kjölfarið fór hann að fylgast með ungum og efnilegum leikmönnum sem komu á þessi mót og kom þeim að hjá liðum á Ítalíu. Þegar hér var komið við sögu bauð Brescia honum starf sem tæknilegur framkvæmdarstjóri og var það fyrir níu árum síðan. "Aðalstarf mitt hjá Brescia var að koma á fót "njósnaneti´" víðsvegar um Evrópu og á Ítalíu til að koma auga á efnilega leikmenn og fá þá til Brescia. Þetta gekk mjög vel því margir mjög góðir knattspyrnumenn hafa komið frá Brescia síðan við byggðum þetta starf upp." sagði Nani
Ítalir sem nú eru heimsmeistarar í knattspyrnu hafa nú tvo landsliðsmenn sem komu frá Brescia og þar átti Nani stóran hlut að máli. Þessir leikmenn eru Luca Toni hjá Bayern Munchen, markahæsti leikmaðurinn í Þýskalandi nú í vetur og Andrea Pirlo.
"Nú er ég að koma til West Ham og hef störf 1.júní n.k.og aðalstarfið mitt verður að koma á fót alþjóðlegu neti til að leita eftir efnilegum knattspyrnum og fá þá til West Ham. Vinna með Alan Curbishley og stjórninni varðandi leikmannakaup, Efla unlingastarfið í samráði við Tony Carr og vinna að uppbyggingu á nýju æfingasvæði. Þetta starf felur í sér að ég þarf að vera mikið á ferðalögum og fylgjast með leikmönnum víða um Evrópu" En Nani segir að unglingastarfið hjá West Ham sé þekkt í Evrópu og ekkert yrði gefið eftir í að efla það enn frekar. Það væri fátt sem veitti stuðningsmönnum meiri ánægju en að sjá stráka úr "hverfinu" ná langt sem knattspyrnumenn og hjá West Ham væri listinn langur yfir frábæra landsliðsmenn í gegnum tíðina. Nani segir að sér lítist mjög vel á það að starfa með Alan Curbishley og eru þeir séu þegar farnir að stilla saman strengi sína ásamt Scott Duxbury. Hann sagðist hafa séð sinn fyrsta leik á Upton Park þegar West Ham sigraði Liverpool í janúar og stemninginn verið ólýsanleg og þá hefði hann fundið að stuðningsmennirnir væru einstakir í sinni röð og ástríðufullir fyrir sínu liði og hlakkaði hann til þess að vera í námunda við þá í framtíðinni. "Það er mikil hefð fyrir frábærri knattspyrnu hjá leikmönnum West Ham í gegnum tíðina og munum við leggja áherslu á að svo verði áfram. Það er mikil vinna framundan í sumar m.a. í leikmannamálum og því mikilvægt að ég og Curbishley förum yfir þau mál. Á meðan leikmenn eru í sumarfríi látum við hendur standa fram úr ermum og það er mikil vinna framundan sem vonandi á eftir að gera West Ham að öflugu knattspyrnuliði í fremstu röð á næstu árum"
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/