Vðtal við Nolberto Solano

18. mars 2008 | 22:55:19

Nolberto Solano varð fljótlega uppáhald stuðningsmanna West Ham vegna sköpunarhæfileika sinna og glæsilegra spyrna en þetta tvennt hefur gert hann að lykilmanni í sóknarleik West Ham þegar hann spilar með og hann spilar ekki heldur feilnótur utan vallar.

Þegar hann gekk til liðs við West Ham frá Newcastle á síðasta degi sölugluggans í ágúst síðastliðnum kom hann með fleira en hæfileika og leikgleði - nefnilega trompet. Hann yfirgaf ekki bara fótboltalið þegar hann fór frá Newcastle heldur líka hljómsveit sína The Geordie Lations. En hann fann fljótlega nýjan stað til að iðka tónlist sína.

"Um leið og tækifæri til að ganga til liðs við West Ham gafst, tók ég það," segir hinn 33 ára gamli leikmaður. "Það er fínt að fá að spila aftur með félögum mínum frá Newcastle og það er gott að vera nálægt börnunum mínum." Solano á tvö börn Mattias 6 ára og Luana 3 ára. "Ég er ánægður hjá félaginu og þakklátur stjóranum að gefa mér tækifæri. Ég reyni alltaf að gera mitt besta og vinnan er alltaf í forgangi hjá mér. Það skiptir mig meginmáli að vera enn að spila og vera hluti af hópnum."

 

Á fyrstu vikum sínum hjá West Ham var oft hægt að rekast á Nobby á æfingasvæðinu að spila á trompetinn fyrir æfingar.

"Ég bjó á hóteli og gat ekki æft mig þar svo ég mætti snemma og æfði mig. Ég varð að halda áfram að æfa mig því ef maður hættir að æfa sig á trompet um hríð getur það orðið mjög erfitt að ná leikninni upp aftur. Ég spila salsa og suðrænan djass en einnig rólegar melódíur eins og Lionel Ritchie. Þetta er nokkuð erfitt hljóðfæri að ná tökum á en mér finnst það mjög skemmtilegt. Ég skemmti mér með liðinu en ég kem ekki oft með trompetinn með mér þótt þeir séu alltaf að biðja mig um það. Kannski á ég eftir að gera meira af því."

Nobby var valinn leimaður desembermánaðar af notendum whufc.com. "Ég er mjög ánægður með það. Við erum með marga góða leikmenn í hópnum og reynum að spila góðan fótbolta. Við stefnum á áttunda sætið. Það væri frábært að geta glatt stuðningsmenn næsta ár með Evrópubolta. Við vitum að það getur orðið erfitt en við eigum möguleika."

Nobby viðurkennir að vera rólegur maður bæði á vellinum og utan hans. Hann opnaði markareikning sinn fyrir West Ham gegn Derby County í nóvember og skoraði fyrsta markið á Boleyn Ground gegn Reading á annan í jólum.

"Mér finnst gaman að skora en mér finnst frábært að vinna svo það skiptir ekki máli hver skorar fyrir liðið. Úrslitin skipta alltaf mestu máli. Ég spila einfaldan bolta, ég les leikinn og geri það augljósasta. Mér finnst gaman að gefa stoðsendingar. Ég er leikmaður liðsins fyrst og fremst fremur en markaskorari. Ég vil aðstoða framherjana og vera klár á vellinum því ég trúi því að maður þurfi að hafa heilann í lagi til að spila fótbolta."

Nobby er fæddur í Lima í Peru en býr núna í Epping. Hann trúir því að fátækt í æsku hafi verið hvati fyrir hann til að gera vel í fótbolta. Hann var yngstur 7 barna og vann ýmis störf frá 12 ára aldri til að hjálpa til við uppihald fjölskyldunnar.

"Ég ólst upp í bæ sem heitir San Miguel hjá foreldrum mínum. Við erum tengd sterkum fjölskylduböndum. Þetta er indæll bær og veðrið er mjög gott. Allir vinir mínir búa enn nálægt fjölskyldu minni. Þegar ég fer þangað höldum við grillveislur og leikum fimm manna bolta úti á götu eins og þegar við vorum litlir. Þetta eru alvöruvinir mínir. Í fótboltaheiminum hittir maður alls konar fólk en þessir vinir eru til lífstíðar."

"Ég vann við hitt og þetta þegar ég var að alast upp. Ég tók við miðum í strætó og vaktaði bíla fyrir þjófum. Aðstæður okkar voru mjög ólíkar mínum aðstæðum í dag. Pabbi minn vann í hernum. Það var mjög erfitt fyrir hann og við höfðum ekki mikið milli handanna. Mamma bakaði kökur sem hún seldi. Þess vegna hvöttu þau mig til að taka fótboltann alvarlega. Ég er mjög ánægður með hvað ég hef náð langt, ekki síst þeirra vegna. Foreldrar mínir eru mínar raunverulegu hetjur því þau höfðu það oft mjög erfitt. "

"Mér finnst allt í lagi að tala um þetta núna. Þetta hefur styrkt mig og kennt mér að meta hlutina. Ég kann að meta hversu verðmætt lífið er, sama við hvaða kringumstæður maður býr. Við erum öll jöfn og enginn er öðrum fremri."

Hjá West Ham hefur ást hans á leiknum orðið öllum ljós. "Ég elska fótbolta og mér finnst það enn jafndásamlegt að spila eins og þegar ég var 5 ára. Mig langaði til að vera atvinnumaður í fótbolta þegar ég var lítill og það tókst. Ég hef verið í úrvalsdeildinni í 10 ár og þeim tíma hef ég séð fjölda leikmanna frá rómönsku Ameríku koma og fara. Ég er einn þeirra fáu sem hafa tollað og ég er stoltur af því."

Snarað og stytt úr Official Matchday Magazine

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun