Viðtal við Matthew Upson

19. febrúar 2008 | 21:14:44

Matthew Upson hefur átt mjög gott tímabil í vetur. Hann hefur skilað frábærum leik fyrir West Ham og verið valinn í landsliðið að nýju.

Það getur svo sannarlega mikið breyst á einu ári. Fyrir 12 mánuðum síðan meiddist Matthew Upson á kálfa í fyrsta leik sínum fyrir West Ham United. Hann var einn af þeim sem voru keyptir í janúarglugganum í fyrra og einn af þeim sem átti að hjálpa okkur að verjast falli. Raunin varð önnur. Hann hafði aðeins leikið í 30 mínútur á Villa Park þegar hann varð að yfirgefa völlinn og við tók erfitt tímabil fyrir þennan hæfileikaríka miðvörð. Hann kom reyndar aftur inn í liðið í mars í leik gegn Tottenham en allt of snemma greinilega því hann lék aðeins 11 mínútur áður en meiðslin tóku sig upp að nýju og hann var ekki meira með það tímabil.

"Ég komst í gegnum þetta af því að ég var sterkur fyrir. Ég var nógu sterkur andlega til að takast á við vandamálið og það var gott fólk í kringum mig sem hjálpaði mér. Ég er mjög ákveðinn og langar nægilega mikið til að gera mitt besta. Ég geri hvað sem ég get til að ná árangri. Ef maður leggur sig fram og gætir þess að gera það sem er rétt þá ganga hlutirnir upp," sagði Matthew Upson .

Þetta hefur heldur betur snúist við hjá honum. Þetta gæti ekki verið betra. Hann hefur leikið hverja einustu mínútu fyrir West Ham í vetur og það er ekki síst honum að þakka að West Ham hefur fengið það orð á sig að vera með bestu vörnina fyrir utan fjóru stóru liðin. Og ekki nóg með það, heldur var hann valinn í landsliðið að nýju eftir þriggja og hálfs árs fjarveru úr hópnum.

"Þetta hefur verið mjög gott tímabil hjá mér" sagði Upson. "Ég er stöðugt að spila og hef ekki misst úr eina mínútu og ekki heldur misst af einni einustu æfingu. Ég vil halda svona áfram, að vinna vel og halda mér í góðri æfingu. Þetta er alveg frábært, sérstaklega eftir síðasta keppnistímabili. Ég veit að margir efuðust um að ég myndi nokkurn tíma verða leikhæfur að nýju. En þetta hefur tekist frábærlega. Sú vinna sem ég hef lagt á mig og líka þeir sem hafa verið að hjálpa mér hefur skilað sér algjörlega."

Þessi hógværi varnarmaður segist hafa verið mjög undrandi þegar hann var valinn í landsliðið. "Mamma mín hringdi í mig til að segja mér fréttirnar," segir Upson. "Ég var úti að keyra með kærustunni minni og var alveg búinn að gleyma að það átti að tilkynna landsliðshópinn. Það er frábært þegar vinna manns skilar svona árangri. Þetta er alveg dásamlegt og þetta sýnir að menn hafa tekið eftir mér . Það er viðurkenning þegar landsliðsstjórinn tekur eftir manni."

Lífið er líka ljúft utan vallar hjá Matty Upson því hann og kærastan hans Elena eiga von á litlum strák, þeirra fyrsta barni, í apríl.

"Yndislegar fréttir.Við erum að skoða nokkur nöfn en viljum ekki gefa neitt upp af því að þá vilja allir segja sína skoðun og maður hættir kannski við gott nafn. Ég hlakka ósegjanlega til að verða pabbi og takast á við eitthvert mikilvægasta starf sem til er. Maður þarf mikinn tíma og þolinmæði trúi ég til að ala upp barn, eða svo hefur mér verið sagt. En ég hlakka mjög mikið til."

Matty er hógværðin uppmáluð þegar minnst er á frammistöðu hans með West Ham í vetur og segir góða spilamennsku hjá sér vera til komna vegna annarra leikmanna sem séu ekki síðri en hann.

"Það skiptir verulegu máli að fjórir öftustu menn og markmaðurinn skilji hver annan. Það er gott þegar maður getur reitt sig á aðra leikmenn. Þegar þú spilar mikið með öðrum, lærirðu hvernig þeir spila og veist fyrirfram hvað er líklegast að þeir geri. Þetta getur verið mikilvægt þegar maður þarf að ákveða sig á svipstundu og staðsetja sig á sem bestan hátt. Með George (McCartney) til dæmis, þá veit ég alltaf hvað hann gerir þegar einhver hleypur í áttina til hans, hvort hann heldur sig fyrri innan eða utan og þá get ég staðsett mig í samfæmi við það. Þetta hjálpast allt að."

"Í hverjum leik koma upp þær aðstæður að þú getur komið í veg fyrir að andstæðingarnir nái góðu marktækifæri með því að staðsetja þig rétt. Þegar maður þekkir hina varnarmennina vel þá hjálpar það manni að sjá fyrir hvert boltinn fer. Varnarmenn West Ham hafa staðið sig mjög vel ekki bara sem heild heldur líka sem einstaklingar og Robert Green hefur verið frábær í markinu. En miðjan og sóknarmennirnir hafa líka staðið sig mjög vel - menn gleyma því stundum að þeir sem spila fyrir framan vörnina skipta líka máli í allri varnarvinnu. Carlton Cole hefur verið mjög duglegur í vetur og hefur unnið mörg návígi. Það skiptir máli fyrir hraða leiksins og lyftir okkur líka upp andlega."

Skyrta númer 6 var fræg hjá West Ham þegar Bobby Moore klæddist henni á árum áður og sá sem klæðist henni núna, Matthew Upson, hefur sýnt takta sem minna stundum á Moore.

"Ég er fullur af sjálfstrausti eins og er og finn að þjálfunin hjá mér er að skila árangri. Slíkur árangur næst þó ekki nema með því að gera slatta af mistökum. En ég finn að leikur minn er mjög stöðuugur um þessar mundir og veit að jafnvel þegar ég er ekki að leika eins og ég geri best þá er það ekki hörmuleg frammistaða. Og ég veit hvenær þessir tímar koma og geri mitt til að reyna að koma í veg fyrir að það gerist aftur. En þegar ég var yngri þá höfðu ein mistök í leik áhrif á leik minn sem eftir var. Það er mjög mikilvægt að hafa náð tökum á þessu . Ég hugsa ekki einu sinni um þetta lengur, ef ég geri mistök þá held ég bara áfram að leika . Hugsa ekki um mistökin heldur leikinn. Ég hef þroskast bæði líkamlega og andlega sem leikmaður. Ég er miklu tilbúnari núna en ég var fyrir svona fjórum árum að takast á við alla hluti," sagði Upson að lokum.

snarað úr Official Matchday Magazine frá 9/2 2008

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun