
Scott Parker ósáttur með frammistöðuna gegn Bolton
09. mars 2010 | 18:57:37
Scott Parker, sem var besti leikmaður West Ham í tapleiknum gegn Bolton á laugardaginn sagði í viðtali við dagblaðið Evening Standard að frammistaða liðsins gegn Bolton á laugardaginn hefði verið skammarleg og þeir hefðu ekki átt skilið að fá neitt út úr leikinum. Bæði mörk Bolton hefðu komið eftir slæm varnarmistök og byrjun liðsins í leiknum hefði verið afleit og sóknarleikurinn í molum. Miðað við mikilvægi leiksins hefðu leikmenn verið miður sín yfir frammistöðunni að leik loknum og ætluðu leikmenn að taka sig saman í andlitinu og þeir hefðu ekki efni á slíkri frammistöðu aftur.
Bandaríska MLS liðið Jan Jose Earthquakes sigraði varalið West Ham í gærkvöldi 2:0 og fór leikurinn fram á Upton Park. Jordan Spence skoraði sjálfsmark strax á 8.mínútu og Ryan Johnson skoraði seinna mark Jan Jose á 50.mínútu.
West Ham stefndi fram nokkuð frambærulegu liði en dugði ekki til. En liðið var þannig skipað.
Peter Kurucz, Bondz N´Gala, Manuel Da Costa,Danny Gabbidon,Fabio Daprela, Kieron Dyer, Jordan Spence, Josh Payne, Anthony Edgar, Ilan og Mido.
Unglingalið West Ham voru sigurvegarar helgarinnar en þeir sigruðu unglingalið Crystal Palace 3:0 á heimavelli. Dominic Vose (2) og Frank Hall skoruðu mörkin í leiknum
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/