
Bolton-grýlan lifir enn góðu lífi.
07. mars 2010 | 19:13:41
West Ham hefur nú tapað fimm leikjum í röð gegn Bolton í deildar og bikarleikjum. Ótrúlegt hvað West Ham gengur ílla á mót liðinu og enginn breyting var þar á í gær þegar West Ham tapaði 1:2 á Upton Park. Leikmenn Bolton komu vel stemmdir fyrir leikinn og byrjuðu af miklum krafti á sama tíma og heimamenn voru algerlega andlausir.
Strax á 10 mínútu náði Bolton forytunni þegar Lee Chung-Yong náði óáreittur að sendi fyrir markið og boltinn sveif yfir James Tomkins, sem átti afleitan leik og beint á höfuðið á Kevin Davis sem átti ekki í vandræðum með skalla í markið af markteig. Enn syrti álinn aðeins sex mínútum síðar þegar Tomkins lét Davies fara ílla með sig en hann var að skíla boltanum áður enn færi yfir endamarkalínuna en Kevin Davis náði að setja löppina framfyrir hann og koma boltanum fyrir markið og Cohen skallaði boltann á Jack Wiltshire, sem skoraði af öryggi og staðan orðinn 0:2 og vonlítil. á næstu mínútum voru gestirnir lílegri til að bæta þriðja markinu við en að West Ham minnkaði muninn. En West Ham fékk tvær aukaspyrnur með stuttu millibili um miðjan hálfleikinn. Úr þeirri fyrri skaut Alessandro Diamanti naumlega yfir en úr þeirri síðari varði Jasskelainen mjög vel. En besta færi hálfleiksins átti Carlton Cole þegar hann komst einn innfyrir vörn Bolton eftir sendingu frá Scott Parker, en hann var of seinn að skjóta og varnarmaður Bolton náði að pota boltanum frá Cole. En á lokamínútum fyrri hálfleiksins fékk Elmander algert dauðafæri þegar hann skaut yfir af vítapunkti eftir sendingu frá Kevin Davies. Staðan því 0:2 í hálfleik og áhorfendur á Upton Park bauluðu á lið sitt þegar það gekk af velli.
Líklega hefur Zola eitthvað lesið yfir sínum mönnum í hálfleik og komu þeir mun krafmeiri til leiks í síðari hálfleik, en vörn Bolton gaf ekkert eftir og sóknarleikur West Ham vandræðalegur og allt hugmyndaflug skorti. Það var ekki fyrr en Tamir Cohen var rekinn af leikvelli með tvö gul spjöld að West Ham náði tökum á leiknum. En gekk erfiðlega að skapa færi. Það var svo loks á 88.mínútu sem Allesandro Diamanti náði að minnka muninn með glæsilegu marki þegar hann skrúfaði boltann í fjærhornið. 1:2.
Fimm mínútum var bætti við leiktíminn og á þeim tíma náðu bæði liðin að skjóta í þverlá. Fyrst skaut títtnefndur Kevin Davis í slánna eftir skyndisókn og svo á fjórðu mínútu í uppbótartíma skaut Junior Stanislas í þverslánna og munaði aðeins hársbreidd að West Ham jafnaði óvænt.
Gianfranco Zola og Steve Clarke verða taka á sig hluta af ábyrgðinni fyrir þessu tapi. Liðið kom algerlega stemmingslaust til leiks og svo auk þess sem allt of margir leikmenn liðsins áttu afleitan leik. Er sá listi langur, Matthew Upson, James Tomkins, Carlton Cole, Valon Behrami og Guissi Franco léku allir langt undir getu.
En sem fyrr var Scott Parker besti leikmaður liðsins, en hann og Alessando Diamanti voru bestu menn liðsins. Næsti leikur liðsins er gegn Cheslea á útivelli og verður það erfiður róður og þetta tap gegn Bolton gæti orðið dýrkeypt. En það vann með West Ham að öll liðin í botnbarátunni töpuðu einnig leikjum sínum um helgina.
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/