
West Ham United - Bolton Wanderers: Spá
05. mars 2010 | 12:54:22
Laugardaginn 6. mars, kl. 15.00
Dómari: Lee Probert
West Ham tekur á móti Grétari Rafni og félögum í Bolton á Boleyn Ground á morgun.
Í gegnum tíðina er West Ham með vinninginn í viðureign liðanna en upp á síðkastið hefur þeim gengið heldur brösulega með Boltonmenn. West Ham hefur ekki unnið eina einustu af 6 síðustu viðureignum þessara liða og aðeins einu sinni náð jafntefli. Þeir hafa hins vegar tapað síðustu 5 leikjum á móti Bolton.
Gengi West Ham í deildinni hefur verið að batna og hafa þeir aðeins tapað einum af síðustu 6 heimaleikjum og unnið þrjá. Þeir hafa ekki fengið á sig mark í síðustu fjórum heimaleikjum.
Bolton hefur aftur á móti gengið vægast sagt illa í síðustu útileikjum og hafa aðeins náð einu jafntefli í síðustu 6 - þeir hafa ekki unnið í síðustu 10 útileikjum.
Það má segja að þetta sé enn einn 6 stiga leikurinn, það munar aðeins einu stigi á liðunum: West Ham er með 27 stig í 13. sæti og Bolton með 26 í því 15.
Hvorugt liðið má við því að tapa og er hætt við að leikið verði af nokkurri varúð. Ég ætla rétt að vona að West Ham nái sigri því þeir eru klárlega betra knattspyrnulið en Bolton. Ef leikmenn mæta rétt stemmdir til leiks þá vinna þeir þennan leik og ég held maður verði að gera ráð fyrir því. Spá: 2-1
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/