
Þrír leikmenn West Ham í enska landsliðinu.
03. mars 2010 | 22:14:27
Þeir Robert Green og Matthew Upson léku allan leikinn þegar Englendingar sigruðu Egypta 3:1 í vináttulandsleik á Wembley í kvöld. Þriðji West Ham leikmaðurinn Carlton Cole kom inn á þegar um sex mínútur voru eftir af leiknum í stað Wayne Rooney.
Valon Behrami lék í 75 mínútur þegar Svisslendingar töpuðu 1:3 í æfingaleik gegn Úrugvæ sem fram fór í Sviss í kvöld. Annar svisslenskur landsliðsmaður hjá West Ham Fabio Daprella lék með U-21 árs liði Svisslendinga sem gerði 1:1 jafntefli Póllandi í kvöld.
Þeir David Sullivan og David Gold biðla nú til Matthew Upson að semja við West Ham, en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Þeir segja að hann gæti átt góð ár hjá West Ham, sem fyrirliði liðsins.
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/