Hetjur fyrri tíma: CLYDE BEST

27. febrúar 2010 | 19:47:26

Clyde Best er er tvímælalaust frægasti knattpsyrnumaður sem komið hefur frá Bermúdaeyjum fyrr og síðar. Best fæddist í Somerset á Bermúda 24.febrúar 1951. Hann kom til Lundúna árið 1969 aðeins 17 ára gamall til að ganga til liðs við West Ham eftir að hafa vakið athygli njósnara frá West Ham á eyjunni. Það var John heitinn Charles þáverandi hægri bakvörður hjá West Ham sem tók piltinn að sér og dvaldist hann á heimili Charles fyrsta ár sitt hjá félaginu. Þrátt fyrir ungan aldur var Clyde Best ekkert smásmíði. Hann var fljótlega borinn saman við hneflaeikamannin Sonny Liston. Hann var stekbyggður og stór eftir aldri.

Clyde Best lék sinn fyrsta leik með West Ham í ágúst 1969 gegn Arsenal. Hann lék 25  leiki með félaginu á næstu tveimur árum og skoraði sex mörk. Það var síðan á keppnistímabilinu 1971-1972 sem Clyde Best sló ærlega í gegn. Hann skoraði 23 mörk í í 56 leikjum í öllum keppnum. Hæst bar mikil rimma gegn Stoke City í undanúrslitum deildarbikarsins. Fóru fram fjórir leikir sem lifa í minningu þeirra sem munaþessa leiki. Í undanúrslitum voru leiknir tveir leikir heima og heiman. Í fyrri leiknum, sem fram fór á victoria Stadium í Stoke sigraði West Ham 1:2. Skoraði Clyde Best bæði mörkin. Í þeim síðari á Upton Park náði Stoke að sigra 0:1. og staðan því jöfn. En í leiknum varði Gordon Banks frábærlega vítapyrnu frá Geoff Hurst. Var sú markvarsla talin eins sú stórfenglegasta sem þessi besti markvörður heims á þeim tíma framkvæmdi. Þriðja leiknum með markalausu jafntefli og loks í þeim fjóðra sigraði Stoke 3:2 og skoraði Clyde Best aftur bæði mörkin.

Á næsta keppnistímabili fór örlítið að halla undan fæti hjá Best og hann átti ekki fast sæti í aððliði West Ham á næstu tveimur keppnistímabilum Ein af ástæðunum voru nýjir leikmenn sem gengu til liðs við West Ham á þessum tíma, eins og Alan Taylor, Billy Jennings, Bobby Gould og Keit Robson

Clyde Best yfirgaf West Ham árið 1975 og gekk til til liðs Tampa Bay Rowdies í bandarísku knattspyrnudeildinni. Þar hitti hann fyrir ekki ómerkari menn en Pele, Franz Beckenbauer og George Best. Ári síðar snéri hann aftur til West Ham og lék nokkra leiki á keppnistímabilinu 1976-1977, en hélt síðan til Feyenoord í Hollandi.

Clyde Best lék 218 leiki með West Ham og skoraði 58 mörk í þeim. Best lék tvö tímabil  með Feynoord áður en fór aftur til Bandaríkjanna og lék með Portland Timbers. Eftir dvöl sína í Bandaríkjunum snéri Best aftur til Bermúda og varð landsliðsþjálfari knattspyrnulandsliðsins á árunum 1997 til 2000. Eftir það hætti Clyde Best afskiptum af knattspyrnunni og gerðis fangavörður.

Í síðasta mánuði tók unglingalið frá West Ham þátt í knattspyrnumóti á Bermuda sem bar nafn Clyde Best og var hann aðalskippuleggjandi mótsins.

 

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun