
Gianluca Nani kveður
25. febrúar 2010 | 11:01:53
West Ham tilkynnti í gær að Gianluca Nani hefði látið af störfum sem tæknilegur ráðgjafi hjá West Ham. Hann var ráðinn til félagsins fyrir tveimur árum og átti eitt ár eftir samningi sínum, þegar hann var látinn taka pokann sinn.
Nani átti þátt í kaup og lánssamningum á nokkrum leikmönnum eins og t.d. Valon Behrami, Herita Ilunga og Alesandro Diamanti. Sem eru að mörgu leiti góð kaup. En þau kaup sem ekki heppnuðust hjá honum voru kaupin á Savio Frá Brescia.
Talið er að nýju eigendurnir Sullivan og Gold séu að skera niður kostnað með þessum aðgerðum. Auk Nani hefur Scott Duxbury hætt störfum hjá félaginu eins og við sögðum frá. Við starfi Duxbury hefur tekið Karren Brady, sem var reksstrarstjóri hjá Birmingham City í valdatíð Sullivan og Gold á þeim bæ. En Sullivan lét hafa eftir sér að hann borgaði sjálfur Karren Brady laun en ekki félagið.
Varalið West Ham sigraði varalið Chelsea 2:1 á heimavelli sínum á Little Heath í gærkvöldi. Það voru þeir Oliver Lee og Anthony Edgar sem skoruðu mörk West Ham í leiknum.
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/