
Wayne Rooney gerði gæfumuninn
23. febrúar 2010 | 22:55:40
West Ham réð lítið við Wayne Rooney, einn öflugasta framherja heims í dag. En hann skoraði tvö mörk í öruggum 3:0 sigri Manchester United á Old Trafford í kvöld.
Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og þurfti Robert Green að henda sér fyrir fætur Berbatov eftir aðeins 40 sekúndna leik, En vörn West Ham náði að standa storminn af sér í byrjun og West Ham komst rólega inn í leikinn og um miðjan hálfleikinn fengu gestirnir gott færi en Behrami skaut naumlega framhjá fjærstönd. En heimamenn náðu forystunni á 38 mínútu með glæsimarki. En þá tók Valencia vel á móti boltanum vinstra megin við vítateiginn og sendi viðstöðulaust fyrir marki og þar var Rooney mættur og skallaði boltann óvaldaður í markið. 1:0.
Í upphafi síðari hálfleiks byrjuðu heimamenn með látum og átti Park hörkuskot í markvinkilinn áður en Rooney bætti við öðru marki á 55.mínútu og aftur eftir fyrirgjöf frá Valencia en hann skallaði markið af stuttu færi. Óverjandi fyrir Robert Green. 2:0.
Eftir þetta sóttu heimamenn af nokkrum krafti en leikmenn West Ham léku ágætlega samt út á vellinum en náðu aldrei að ógna marki heimamanna. En næst því komust þeir þegar Behrami átti fyrirgjöf en boltinn fór rétt aftan við Carlton Cole. Michael Owen kom inn á fyrir Ronney og bætti við þriðja markinu á 80.mínáutu þegar hann komst innfyrir og skaut í stöng og inn. En umdeilt var að Mark Noble lá slasaður á vellinum en heimamenn héldu áfram og skoruðu þriðja markið en hefðu átt setja boltann úr leik. En heimadómarinn Alan Wiley sá ekkert athugavert.
Leikmenn West Ham geta ekki kvartað yfir úrslitunum. Heimamenn voru mun sterkari allann leikinn. En athygli vakti að Scott Parker var hvíldur í leiknum og segir það allt um áhugan fyrir leiknum. Þannig að þessi leikur er þá að baki og næsti leikur gegn Bolton á Upton Park þann 6 mars n.k. er afar mikilvægur og þá verða vonandi Parker og Benni McCarthy klárir í slaginn.
Erfitt er að kjósa mann leiksins en þá nafnbót fær samt varnarmaðurinn ungi James Tomkins. Hann var langbesti maður varnarinnar og stóð vaktina vel en Matthew Upson átti slakan leik. Þá var Radoslav Kovac drjúgur á miðjunni og stóð fyrir sínu og Behrami duglegur en hann var tekinn af leikvelli um miðjan síðari hálfleikinn.
Maður leiksins: James tomkins
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/