Erfiðleikar hjá Mikhael hörðum stuðningsmanni West Ham í Sierra Leone

22. febrúar 2010 | 20:56:44

Eins og við sögðum frá hérna á heimasíðunni í fyrra þá er ungur maður Michael sem býr Freetown í Afiríkuríkinu Sierra Leone sem er einlægur stuðningsmaður West Ham. Michael hefur oft litið við hjá hjónunum Ingunni Önnu Jónasdóttur og Engilbert Guðmundssyni og tekið til hendinni í garðinum þeirra í Freetown

Þau Ingunn og Engilbert, sem eru frá Akranesi hafa búið í Sierra Leone í nokkur ár og er  Engilbert bankastjóri Alþjóðabankans í landinu, en bankinn hefur unnið að uppbyngu í landinu eftir hörmulega borgarastyrjöld sem þar geysaði í áratug.

Þegar Ingunn var á Akranesi á síðasta ári sagði hún Sigþóri Eiríkssyni formanni West Ham klúbbsins á Íslandi frá áhuga Michael á ensku knattspyrnunni og West Ham. Við sendum honum West Ham treyju og nokkra hluti frá klúbbnum á Íslandi

Í síðustu viku sagði Ingunn okkur frá því að Michael hefði nýlega orðið fyrir sárri sorg þegar hann missti eiginkonu sína frá þremur börnum þeirra, en hún lést við fæðingu þriðja barns þeirra.

En þrátt fyrir þetta áfall bæri Michael sig ótrúlega vel og var mættur í garðinn hjá Ingunni og Engilbert s.l. laugardag í West Ham treyjunni sinni sem hann klæddist nánast öllum stundum. Ingunn tók þá þessa mynd af honum.

Við munum að sjálfsögðu senda Michael nýja treyju til skiptanna sem allra fyrst.

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun