Manchester United - West Ham United: Spá

22. febrúar 2010 | 20:02:59

Þriðjudagur 23. febrúar kl. 20.00

Dómari: Alan Wiley

West Ham menn eru vart komnir niður úr skýjunum eftir frábæara frammistöðu gegn Hull á laugardag þegar þeir þurfa að leggja á sig ferðalag norður til Manchester til að takast á við núverandi Englandsmeistara Manchester United.

Liðin hafa átt ólíku gengi að fagna, ekki einungis á þessu tímabili heldur í gegnum tíðina eins og kunnugt er. Manchester United hefur unnið fjórar síðustu viðureignir liðanna en West Ham menn unnu þrjá leiki liðanna þar áður. Alls hafa West Ham menn lotið í lægra haldi í 40 skipti af þeim 60 sem þeir hafa leikið á Old Trafford.

Staða liðanna í deildinni núna er misjöfn eins og oft áður. Manchester United er í öðru sæti með 57 stig eftir 27 leiki. West Ham hefur leikið einum leik minna en eru nú í 13. sæti með 30 stigum færri eða 27.

Manchester Unite tapaði að vísu um helgina en hefur gengið vel á heimavelli í síðustu leikjum og hafa unnið 5 af síðustu 6.  West Ham hefur aftur á móti gengið afleitlega á útivelli og hafa aðeins náð tveimur jafnteflum í síðustu 6 leikjum og ekki unnið einn einasta.

Ég á ekki von á að neinir óvæntir atburðir gerist í þessum leik og þrátt fyrir gott gengi West Ham í undanförnum tveimur leikjum hef ég ekki trú á þeir sigri Manchester United að þessu sinni (þótt það yrði óneitanlega gaman).  Spá 2-0

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun