
Bikardraumurinn úti í bili
03. janúar 2010 | 20:59:15
West Ham United 1 - 2 Arsenal
3. umferð FA bikarsins
Arsenal sló West Ham út úr FA bikarnum í dag með mörkum frá Ramsay og Eduardo seint í síðari hálfleik eftir að Diamanti hafði komið heimamönnum yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Það sem sennilega réði úrslitum í þessum leik voru skiptingar Arsene Wenger í síðari hálfleik þegar hann setti þá Nasri og Diaby inn á. Það má segja að þessar skiptingar hafi breytt gangi leiksins Arsenal í hag. Zola hafði hins vegar ekki yfir slíkum mannskap að ráða á sínum bekk með marga af lykilmönnum lðsins meidda og því fór sem fór.
Athyglisverðar breytingar á byrjunarliði West Ham voru þær að hinir ungu Fabio Daprela og Frank Nouble voru báðir í byrjunarliðinu og Freddie Sears var á bekknum.
Fyrstu 10 mínútur leiksins voru tíðindalitlar og lítið um færi. West Ham stjórnaði miðjunni vel og sóknarmenn Arsenal komust lítið áleiðis. Þó munaði litlu að illa færi þegar James Tomkins gerði sig sekan um slæm mistök og sendi boltann beint á Eduardo um 25 metra frá marki. Arsenalmaðurinn skaut föstu skoti að marki og stefndi boltinn í netið hægra megin en Robert Green varði vel í horn.
Hinum megin átti Stanislas skot af 20 metra færi og síðan átti Diamanti gott skot á 27. mínútu sem Fabianski varði einnig í horn.
Arsenal leikmennirnir léku vel sín á milli en komust ekki álengdar gegn varnarmönnum West Ham. Það var síðan rétt áður en flautað var til hálfleiks, í uppbótartíma að Valon Behrami lék boltanum á Diamanti sem skaut að marki um leið og hann komst inn í teig. Markmaður Arsenal kom við boltann en kom engum vörnum við . Glæsilega gert. 1-0
West Ham hélt áfram að spila sóknarbolta í byrjun síðari hálfleiks en hinn ungi Frank Nouble sóaði færum – þegar hann missti boltann tvisvar sinnum á klaufalegan hátt í stað þess að gefa hann á lausa leikmenn. Stanislas átti síðan þrumuskot að marki eftir að hann fékk frábæra sending frá Diamanti en Fabianski náði að pota fingrunum í boltann því miður og bjarga marki.
Á 65. mínútu komu síðan skiptingarnar hjá Arsenal sem að mínu mati skiptu sköpum í leiknum. Þá komu Nasri og Diaby inn á fyrir Wilshire og og Merida. Og árangurinn lét ekki á sér standa því nokkrum mínútum síðar léku þeir Song og Diaby vel saman í gegnum vörn West Ham en Robert Green varði gott skot Diabys. Song náði frákastinu og enn varði Green. Þarna sluppu West Ham menn sannarlega með skrekkinn
En þegar rúmar 10 mínútur voru til leiksloka var heppnin ekki lengur með heimamönnum. Þá gaf Vela boltann á Ramsay inni í fremur fjölmennum vítateig West Ham. Ramsay stóð vinstra megin í teignum og hamraði boltanum í netið. Robert Green kom engum vörnum við. 1-1
Og aðeins þremur mínútum síðar gerði Eduardo svo úti um leikinn. Þá var aftur Vela á ferðinni en hann gaf glæsilegan bolta á Eduardo sem staddur var inni í miðjum teig West Ham. Matthew Upson hreyfði sig ekki við hlið hans og Eduardo skallaði yfir Green í markinu. 1-2
Allt loft virtist vera úr leikmönnum West Ham og Arsenal menn héldu áfram að sækja og minnstu munaði að þeir bættu við marki þegar skot Vela var hreinsað af marklínunni skömmu fyrir leikslok. Heimamenn náðu ekki að koma til baka og það eru því Arsenal sem halda áfram í fjórðu umferð bikarkeppninnar en West Ham er úr leik.
Frammistaða leikmanna:
Green stóð sig vel – mun betur en í undanförnum leikjum og Upson var mjög traustur í vörninni. James Tomkins átti ekki slæman leik í heildina en gerði afdrifarík mistök sem næstum kostuðu mark.
Faubert var ágætur bæði í vörn og sókn og Daprela bjargaði á línu þótt hann ætti nokkrum sinnum í vandræðum með fljóta framherja Arsenal.
Jimenez og Kovac voru báðir traustir á miðjunni og Kovac átti nokkrar fínar sendingar. Stanislas barðist vel og Nouble er sterkur strákur en hangir allt of mikið á boltanum finnst mér.
Diamanti lék vel allan leikinn, barðist vel en Behrami var sennilega mikilvægasti hlekkur okkar á miðjunni í dag. Vann vel bæði til baka og í sókn. Maður leiksins Valon Behrami
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/