
Slæmur mánudagur á White Hart Lane
28. desember 2009 | 17:42:43
Tottenham 2 – 0 West Ham United
Eftir tvo góða leiki í röð gegn Chelsea og Portsmouth fengu West Ham menn á sig skell gegn Tottenham.
Frá upphafi leiks var í raun aldrei spurning á hvorn veginn leikurinn myndi fara, heldur aðeins um hve mörg mörk Spurs myndi skora.
Valon Behrami var kominn aftur í byrjunarliðið en hann kom inn á í síðasta leik og Jimenez var kominn á bekkinn (ekki lengi þó). Franco var einn frammi.
Tottenham menn byrjuðu af krafti og sóttu nokkuð grimmt , fengu m.a. þrjár hornspyrnur á fyrstu 9 mínútum leiksins og eftir 10 mínútna leik fór Aaron Lennon á ógnarhraða upp vinstra megin og komst inn fyrir, gaf fyrir og þar var mættur Luca Modric sem var ekki að tvínóna neitt við þetta og skaut viðstöðulausu skoti og fyrsta mark leiksins staðreynd. 1-0
Þetta var kannski ekkert sérlega glæsilegt mark, boltinn fór í jörðina og svo yfir Robert Green en það skipti Tottenham engu máli.
Og þetta var ekki eina áfallið sem West Ham menn urðu fyrir í byrjun leiks því að Scott Parker varð fyrir meiðslum og þurfti að fara út af fyrir Jimenez.
Stefndi sem sagt allt í stórtap í byrjun og á 19. mínútu fór Ilunga síðan út af fyrir Jonathan Spector. Báðir tognaðir að því er sagt er.
Fyrsta skot West Ham kom eftir 25 mínútur og var þar að verki Jack Collison. Þetta er sérstaklega athyglisvert þegar haft er í huga að West Ham menn voru jafnmikið með boltann fyrsta hálftímann og Tottenham en þeir voru bara ekkert að gera við hann. Það voru Tottenham menn sem byggðu upp hverja sóknina á fætur annarri og verður það að taljast nokkur heppni að við höfum aðeins verið einu marki undir. Tom Huddlestone átti tvö skot framhjá, Tomkins kom í veg fyrir skot frá Peter Crouch og á lokamínútu fyrri hálfleiks tók Defoe aukaspyrnu af 30 metra færi sem fór rétt yfir markið.
Síðari hálfleikur hófst á svipuðum nótum. Það voru Tottenham menn sem stjórnuðu og byggðu upp hverja sóknina á fætur annarri og voru þeir áfram í aðalhlutverkum þeir Huddlestone og Lennon. Sá fyrrnefndi átti hættulegt færi á 56. mínútu þegar skot hans fór í stöngina oh út.
West Ham fór smám saman að komast meira inn í leikinní síðari hálfleik og áttu ágæta sókn en Tottenham komst í skyndisókn og Defoe skaut föstu langskoti á Robert Green sem varði út í teig beint á Defoe sem skaut aftur og skoraði. 2-0
West Ham menn reyndu að komast aftur inn í leikinn en gekk illa en Diamanti átti got skot sem Gomez varði vel og Franco átti eitt skot framhjá.
Þessi tvö mörk segja ekki alla söguna því Tottenham var með mikla yfirburði svo að segja allan leikinn og í raun aldrei spurning á hvern veginn þetta færi heldur aðeins hve mikill munurinn yrði.
Frammistaða leikmanna:
Svo einkennilegt sem það er þá hafði Green ekkert brjálæðislega mikið að gera í markinu og nokkur heppnisstimpill yfir báðum mörkum Tottenham.
Varnarmennirnir voru nokkuð mistækir, Ilunga fór náttúrulega snemma út af og Spector vann ágætlega en Faubert hefur oft átt betri daga. Þeir Upson og Tomkins voru báðir öruggir að venju.
Miðjan hjá okkur hrundi svo að segja þegar Parker fór út af og maður getur bara vonað að hann komi fljótlega aftur. Kovac og Behrami áttu ágæta kafla í leiknum en ollu samt vonbrigðum fannst mér. Og Jimenez og Diamanti sáust varla. Collison var einna bestur á miðjunni fannst mér.
Franco var einn frammi og fékk úr engu að moða – hafði ekki mikið að gera í leiknum og var greinilega orðinn pirraður enda fékk hann gult spjalt og verður því ekki með í næsta leik. Það verður erfitt fyrir Zola að stilla upp framlínu í þeim leik þar sem hinir framherjarnir eru meiddir.
Það voru sem sagt ekki nema þrír leikmenn sem mér fannst standa upp úr í dag, þeir Collison, Upson og Tomkins. Þeir börðust allir vel og skiluðu sínu en Tomkins þó aðeins betur en hinir. Stóð sig afar vel í vörninni. Maður leiksins: James Tomkins.
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/