
Sigur í 6 stiga leik
26. desember 2009 | 17:36:05
West Ham United 2 - 0 Portsmouth
Leikur West Ham og Portsmouth var alvöru 6 stiga leikur ef einhver leikur getur talist það.
Portsmouth byrjaði leikinn heldur betur og áttu ágætis sendingar inn í vítateig West Ham á fyrstu mínútum leiksins án þess þó að skapa sér alvöru færi.
Á 8. mínútu áttu heimamenn síðan fyrsta marktækfiærið og var þar að verki Scott Parker sem skaut af 30metra færi yfir markið þó.
Á 17. mínútu voru síðan fastir liðir eins og venjulega þegar West Ham leikmaður þurfti að yfirgefa völlinn meiddur. Núna var það Mark Noble og kom Luis Jimenez í hans stað. Þetta reyndust ágætis skipti reyndar því að Jimenez var ekki búinn að vera inn á í nema 5 mínútur þegar hann krækti í vítaspyrnu. Parker náði boltanum vinstra megin í teignum og Jimenez var fljótur að átta sig en fyrrum leikmaðurinn Hayden Mullins braut klaufalega á honum og dómarinn dæmdi umsvifalaust víti. Það var hin ofurörugga vítaskytta West Ham Alessandro Diamanti sem fór á punktinn enn einu sinni og skoraði örugglega fram hjá Begovic sem þó fór í rétt horn. 1-0
Jack Collison fékk gott tækifæri til að bæta við marki nokrrum mínútum. Hann fékk boltann hægra megin í teignum og skatu ágætu skoti sem fór rétt yfir markið.
Portsmouth átti líka sín færi og Tal Ben-Haim komst inn í sendingu hjá West Ham og brunaði upp fram hjá fjölmörgum leikmönnum heimaliðsins. Þegar hann nálgaðist markið var hann hins vegar umkringdur og neyddist til að skjóta af 20 metra færi - langt yfir.
Þegar komið var fram í uppbótartíma í fyrri hálfleik áttu West Ham menn stórfallega sókn og gott færi á að auka forystuna. Parker komst upp hægra megin og lék á varnarmenn Portsmouth skemmtilega og náði stórskemmtilegri fyrirgjöf. Boltinn barst út til Collison sem var staddur rétt nokkrum metrum frá marki Portsmouth - óvaldaður. Collison hafðui ágætis tíma til að leggja fyrir sig boltann og skaut nokkrum sentimetrum fram hjá markinu. Verulega svekkjandi.
Í byrjun síðari hálfleik munaði minnstu að West Ham næði að skora þegar Diamanti komst upp vinstra megin og skaut ágætisskoti að marki. Boltinn fór í Portsmouth leikmann og í áttina að marki en Begovic bjargaði stórkostlega með fingurgómunum.
en Begovic bjargaði stórkostlega með fingurgómunum.
Á 58. mínútu átti Diamanti skot af mjög löngu færi sem fór rétt yfir markið.
Þegar á leið síðari hálfleik fóru Portsmouth menn að komast mun meira inn í leikinn – sérstaklega eftir að síbrotamaðurinn Didane var tekinn af velli og Kanu kom inn á. En Didane var mjög heppinn maður að hafa ekki fengið að líta rauða spjaldið í leiknum. Hann fékk gula spjaldið snemma leiks og braut 5 sinnum af sér eftir það án þess að dómarinn sæi ástæðu til að sýna honum annað spjald.
Portsmouth átti nokkrar hættulegar sóknir og það verður að segjast eins og era ð West Ham slapp nokkrum sinnum vel.
Kanu var ekki búinn að vera lengi inn á þegar hann átti skemmtilega hælspyrnu sem splundraði vörn West Ham og minnstu munaði að Piquionne næði boltanum en sem betur fer var Green fljótari til.
Pressa Portsmouth jókst jafnt og þétt og ég játa að það var farið að fara um mig. Piquionne var aftur á ferðinni þegar hann átti viðstöðulaust skot af um 12 metra færi. Gott skot sem fór yfir markið.
Og á 80. mínúitu var Piquionne enn á ferðinni þegar hannkomst fram hjá bæði Tomkins og Upson en skot hans reyndist ekki erfitt fyrir Green.
En West Ham menn voru ekki alveg dauðir úr öllum æðum og Collison náði að skapa sér svæði þegar hann komst fram hjá Ben-Haim. Begovic varði hins vegar skot hans vel.
Þá var röðin komin að Valon Behrami sem hafði komið inn á fyrir Diamanti nokkrum mínútum áður. Hann kom upp völlinn hægra megin og spilaði skemmtilega við Parker. Behrami komst í færi og fram hjá markverðinum en skot hans fór rétt fram hjá markinu.
Það var ekki fyrr en á lokamínútu venjulegs leiktíma að heimamönnum tókst að gulltryggja sér sigurinn. Jimenez vippaði boltanum inn í vítateig úr aukaspyrnu hægra megin. Kovac náði fyrirgjöfinni og skallaði glæsilega í netið. 2-0
Einkar vel gert og nauðsynlegur sigur fyrir West Ham sem lyfti sér upp úr fallsæti og eru eins og er í 15. sæti deildarinnar.
Það má kannski segja að leikurinn hafi á köflum einkennst af taugaveiklun og það kom náttúrulega að einhverju leyti niður á gæðum hans svona fótboltalega séð. Ég er hins vegar afar ánægð með útkomuna og ekki síst með það að liðið er loksins farið að sýna "karakter" og berjast. Með sama áframahaldi held ég að við þurfum ekki að vera í fallbaráttu allt tímabilið þótt vissulega séu erfiðir leikir framundan.
Frammistaða leikmanna:
Robert Green hélt hreinu í fyrsta sinn í langan tíma. Hann átti eitt slæmt úthlaup en gerði annars það sem hann þurfti.
Bakverðirnir Faubert og Ilunga áttu báðir góðan leik og þeir Upson og Tomkins voru fastir fyrir.
Miðjumennirnir börðust allir vel ef undan er skilinn Mark Noble sem fór út af á 18. mínútu. Jimenez átti afbragðsleik og skapaði í raun bæði mörkin, Collison átti mörg fín færi og hefði raunar átt að skora og Kovac skoraði þetta yndislega mark og fer batnandi með hverjum leik. En að venju var það Scott Parker sem var yfirburðarmaður á vellinum og stjórnaði leik West Ham af glæsibrag.
Diamanti er mjög skemmtilegur leikmaður og flinkur og einstaklega örugg vítaskytta og Franco vann vel en er allt of eigingjarn.
Behrami var mjög hættulegur þegar hann kom inn á en hinn ungi Nouble hafði lítinn tíma.
Maður leiksins: Scott Parker
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/