Björgólfur Guðmundsson eigandi West Ham United

15. október 2007 | 16:53:05
Nær að sameina áhugamálin: viðskipti og fótbolta.

Aðaleigandi West Ham United og formaður bankaráðs Landsbanka Ísland, Björgólfur Guðmundsson eignaðist West Ham United þegar hann gekk frá kaupunum á félaginu í nóvember á síðasta ári.
Þessi kaup komu þeim sem þekktu til Björgólfs ekkert á óvart. Hann er þekktur fyrir að vilja láta gott af sér leiða á Íslandi, hefur þar verið áhugamaður um menningu og listir og lagt góðum máefnum lið hér á landi eins og allir þekkja og var á síðasta ári kjörinn vinsælasti auðmaðurinn á Íslandi af einum útbreiddasta fjölmiðli landsins.
Þá er Björgólfur þekktur fyrir brennandi áhuga sinn á íþróttum og sér í lagi knattspyrnunni.

Í nýlegu viðtali við blaðið Moment, sem gefið er út af Landsbankanum, sagði Björgólfur að hann hefði ungur að árum heillast af knattspyrnunni eins og svo margir strákar á hans aldri á þeim tíma. Hann lék knattspyrnu með KR langt fram á unglingsárin og varð íslandsmeistari með þeim í yngri flokkunum.

"Ég hætti knattspyrnuiðkun áður en ég kom upp í meistaraflokk." sagði Björgólfur. "Það var svo margt annað spennandi sem fangaði huga minn. Margir af þeim sem léku með mér upp yngri flokkanna hjá KR urðu síðar kjarninn í sigursælu KR-liði snemma á sjöunda áratugnum. Þeir urðu nokkrum sinnum Íslandsmeistarar með KR á þessum tíma. Ég hreinlega man ekki hversu oft, en þetta var sigursælt lið, sem oft hefur verið kallað Gullaldarlið KR".

Á þessum árum vann KR sér rétt til þátttöku í Evrópukepnni félagsliða og í sínum fyrsta Evrópuleik var ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Það var leikur gegn Liverpool á Anfíeld Road, sem reyndar var fyrsti Evrópuleikur Liverpool og þar með skráður í langa og farsæla sögu Liverpool í Evrópukeppnum.

"Ég man vel eftir þessum leik." sagði Björgólfur. "Áhugi á ensku knattspyrnunni var vaknaður á þessum tíma og okkur fannst þetta auðvitað alveg frábært, að liðið okkar KR mætti þessum ensku risum."

Björgólfur sagði ennfremur að West Ham hefði vakið mikla athygli á þessum árum, enda hafði það á að skipta mörgum frábærum leikmönnum. Árið 1964 urðu þeir enskir bikarmeistarar þegar þeir lögðu Preston að velli 3:2 og ári síðar urðu þeir Evrópumeistarar bikarhafa þegar þeir sigruðu þýska liðið 1860 Munchen 2:0 í eftirminnlegum úrslitaleik á Wembley. Bestu leikmenn þessa liðs Bobby Moore, Geoff Hurst og Martin Peters urðu síðan heimsmeistarar með Englendingum árið 1966 og gengu þriðja árið í röð upp tröppurnar 39 á Wembleyleikvanginum til þess að taka á móti heimsbikarnum. Einstakt afrek sem seint verður leikið eftir.
Björgólfur sagði að á þessum árum hefði hann byrjað að halda með West Ham og hreifst mjög af liðinu enda þekktir fyrir að spila skemmtilegan fótbolta.

Þessi ár hjá West Ham var þeirra gullaldartími eins og hjá KR. "Eða eigum við ekki að segja fyrstu gullaldarár West Ham." sagði Björgólfur og brosti. "Næstu gullaldarár eru rétt handan við hornið"

Ensk knattpyrnulið og stuðningsmenn þeirra eru afar stolt af knattspyrnuliðum sínum og uppruna þeirra og bera mikla virðingu fyrir þeim leikmönnum sem skópu sögu þessara liða.
"Ég gat ekki varist því að fá þessa tilfinningu þegar ég fór á leiki West Ham og hitti fyrir fyrrum leikmenn liðsins eins og Trevor Brooking og Billy Bonds, en þeir koma á flesta heimaleiki West Ham og meðal stuðningsmanna liðsins eru þeir í dýrlingatölu.

Knattspyrnan hefur mér alltaf þótt óútreiknanleg íþrótt, sem gerir hana líka svo skemmtilega og spennandi. Það undrar mig ekki að hún sé vinsælasta íþróttagrein heims. Fólk á öllum aldri og af öllum kynþáttum leikur íþróttina, fylgist með henni með eigin augum eða í sjónvarpi og styður lið sín af mikilli ástríðu"

"Þegar tækifærið bauðst fyrir ári síðan að kaupa West Ham sá ég strax að ég gat þarna sameinað áhuga minn á fótbolta og viðskiptum. Það er ekkert sem vex eins hratt og vekur meiri áhuga í hinum svokallaða afþreyingargeira en knattspyrnan.
Þannig að ég hugsaði með mér að þarna væri gott viðskiptatækifæri sem væri hvoru tveggja skemmtilegt og spennandi."

Björgólfur sagði einnig að West Ham væri að mörgu leyti einstakt félag með mikla sögu að baki. Unglingastarf félagsins væri einstakt í sinni röð og virt af knattspyrnuheiminum í Englandi.
Unglingastarfið hjá West Ham hefur alið af sér frábæra knattspyrnumnenn á síðasta áratug á borð við Rio Ferdinand, Frank Lampard, Joe Cole og Michael Carrick, sem allir eru landsliðsmenn í dag. Af öllum ensku úrvalsdeildarfélögunum þá er West Ham með flesta enska leikmenn í sínum röðum.

Síðasta keppnistímabil hjá West Ham var heldur betur viðburarríkt. Það byrjaði með kaupunum umdeildu á Argentísku landsliðsmönnunum Carlos Teves og Javier Macherano. Það varð mikil eftirvænting í herbúðum West Ham með komu þeirra, enda álitin góð viðbót við liðið unga sem stóð sig svo frábærlega árið áður á sínu fyrsta ári í Úrvalsdeildinni að nýju eftir tvö ár í 1.deild. Þeir enduðu í 9.sæti í Úrvalsdeildinni og léku til úrslita í Ensku Bikarkeppninni gegn Liverpool í einum eftirminnilegasta úrslitaleik síðari ári, sem lauk með 3:3 jafntefli eftir framlengingu og Liverpool sigraði að lokum eftir vítaspyrnukeppni, þar sem hvorugt liðið átti skilið að tapa.
En liðið átti í miklum erfiðleikum í byrjun keppnistímabilsins og var aðeins skugginn af því liði sem lék svo frábærlega í bikarúrslitaleiknum á Millenium leikvanginum um vorið.

Það var síðan í nóvember á síðasta ári þegar Björgólfur Guðmundsson keypti West Ham á 90 milljónir sterlingspunda sem hlutirnir fóru að gerast. Lítil breyting vað á árangri liðsins og varð að grípa til þess ráðs að láta Alan Pardew fara og í hans stað var ráðinn Alan Curbishley, sem lék á árum áður með West Ham og gerði garðinn frægan hjá Charlton Athletic.

Moldvirðrið í kringum kaupin á Argentínumönnunum Teves og Macherano, sem blásið var upp í öllum fjölmiðlum í Bretlandi um, að ekki hefði verið rétt staðið að þeim kaupum varð m.a. þess valdandi að liðið náði sér ekki almennilega á strik og lítið gekk. Þegar aðeins 11 leikir voru efir af mótinu var West Ham í neðsta sæti og útlitið ekki gott. En þá snérust hjólin heldur betur liðinu í vil og af þessum 11 leikjum sigraði West Ham í 9 þeirra og tókst á ævintýralegan og frábæran hátt að bjarga sér frá falli og halda sæti sínu í Úrvalsdeildinni.

Þótt á engan annan sé hallað þá var það að miklu leyti framlag Carlos Teves sem varð til þess að West Ham hélt sæti sínu í úrvalsdeildinni.Hann skoraði mikilvæg mörk sem færðu liðinu dýrmæta sigra á lokasprettinum sem kallaður hefur verið meðal stuðningsmannanna björgunin mikla (The Great Escape)

"Þetta var hreint ótrúlegt. Þið getið ímyndað ykkur álagið sem hlýtur að hafa verið á Eggerti Magnússyni á þessum tíma." sagði Björgólfur. "Á tímabili var eins og allt væri á móti okkur, hreinlega allt. En á móti kom að á stundum vildi maður trúa því að það væri verndarengill genginn í lið með okkur, sem hélt boltanum frá marki okkar í sumum leikjunum á lokasprettinum. Að hugsa sér að lið sem var einfaldlega í frjálsu falli á tímabili skildi leggja að velli lið eins og Manchester United og Arsenal bæði heima og úti. Það sagði sína sögu um að það bjó ýmislegt í þessu liði."

Björgólfur ljómar allur þegar hann er spurður að því hver framtíðarsýn hans sé með West Ham.
"Framtíðarsýn mín er margþætt." sagði Björgólfur.

"Í fyrsta lagi sé ég mikla framtíð í byggingu nýs leikvangs sem tekur 60 til 70 þúsund manns í sæti.

Leikvangurinn verður staðsettur nálægt West Ham járnbrautarstöðinni rétt austan við City fjármálahverfið. Stuðningsmenn okkar eru óstövandi. Þeir standa með liði sínu hvað sem á dynur. Ég get vart lýst þeirri tilfinningu, sem ég fæ þegar ég heyri þá syngja, hrópa og hvetja lið sitt til dáða og andrúmsloftið verður rafmagnað.

Það er mikil eftirspurn eftir miðum á heimaleiki West Ham og við erum sannfærðir um að getum fyllt 70 þúsund manna leikvang á alla heimaleiki okkar.

Það gleður okkur einnig mjög mikið hversu vel aðkomu okkar að félaginu hefur verið tekið af stuðningsmönnum West Ham"

Þegar kemur að framtíðaráætlunum fyrir leikmannahóp West Ham, þá er ekki síður nauðsynlegt að líta til lengri tíma en skemmri." sagði Björgólfur

"Núna er markmiðið að liðið haldi vel stöðu sinni í úrvalsdeildinni og færist hægt en örugglega í hóp efstu liða og mikilvægt er að ná stöðugleika í liðið. Ef við horfum til næstu fimm ára þá erum við að sjá það fyrir okkur, að liðið komist í toppbaráttuna með þátttöku í Evrópukeppnum og í framhaldinu að gera atlögu að stóru titlunum sem í boði eru." sagði Björgólfur Guðmundsson ákveðinn.

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun