
Jöfnunarmark Gerrards gegn West Ham 2006 kosið glæsilegasta mark allra tíma í bikarúrslitum - eða svindlaði Liverpool !
30. maí 2009 | 11:36:23
Í tilefni af bikarúrslitaleiknum í dag þegar Chelsea mætir Everton á Wembley var kosning í vikunni meðal lesenda breska dagblaðsins Daily Telegraph um hvaða mark væri glæsilegasta mark allra tíma í bikarúrslitaleik. Í fyrsta sæti varð þrumufleygur Steven Gerrard í uppbótartíma í úrslitaleiknum gegn West Ham á Millenium Stadium í Cardiff 2006 og jafnaði þar með leikinn 3:3. Þar að auki var leikurinn tilnefndur af mörgum sem besti og mest spennandi úrslitaleikur allra tíma.
Þrátt fyrir þessar hástemndu umsagnir. Þá er hægt að fullyrða að flestum ef ekki öllum stuðningsmönnum West Ham svíður enn úrslit leiksins. Allir voru sammála um það að West Ham átti skilið að verða bikarmeistari þetta ár. En það er oft lítið sem heitir sanngirni í knattspyrnunni. Þeir voru einfaldlega mun betri aðilinn í úrslitaleiknum. West Ham komst í 2:0 snemma leiks, en Liverpool náði að jafna 2:2, en Konchesky kom West Ham yfir 3:2 áður en markið kom frá Gerrard á fyrstu mínútu í uppbótartíma. Í framlengingunni átti Liverpool nánast ekkert marktækifæri á meðan West Ham fékk tvö dauðafæri til að tryggja sér sigurinn. Í fyrra skiptið varði Pepe Reyna hreinst ótrúlega skalla frá Nigel Reo Coker og svo skaut Marlon Harewood framhjá fyrir opnu marki á lokamínutunum, reyndar orðinn örþreyttur og skaut með vinstri fæti. Öll vitum við síðan hvernig vítapsyrnukeppnin fór
Í skemmtilegri grein á vefmiðlinum "The Game´s gone crazy" er pistlahöfundur (sem reyndar er West Ham aðdáandi) hreint ekki sammála þessari niðurstöðu. Er reyndar sammála því að markið hefði verið ágætt. En Steve Gerrard hafi látið vaða blindandi af löngu færi og haft heppnina með sér. Knötturinn hefði alveg eins getað lent í hornfánanum. Markið og aðdragandi þess hefði frekar átt að vinna til verðlauna sem óíþróttamannslegasta framkoma allra tíma.
Hann segir " Hvernig átti argentínski bakvörðurinn Leon Scaloni hjá West Ham að vita það að á síðustu mínútu leiksins þegar hann var með knöttinn og sendi hann útaf er einn leikmaður Liverpool lá meiddur á vellinum og sýndi þar með íþróttamannslega framkomu Að síðan að leikmenn Liverpool mundu þakka fyrir það með því að þverbrjóta allar leikreglur um heiðarleika í íþróttum. Leikmaðurinn fékk aðhlynningu.Liverpool tók innkastið. Í stað þess að henda knettinum aftur fyrir endamörk West Ham en innkastið var nálægt hornfánanum. Þá kom fyrirliði Liverpool Jamie Carracker til Jan Arne Riise, sem tók innkastið og sagði honum að henda knettinum beint á Scaloni og pressa hann um leið. Riise henti boltanum nánast í Scaloni og hljóp svo beint í hann og fát kom á Argentínumanninn, sem sparkaði knettinum ómarkvasst frá sér til leikmanns Liverpool, sem náði fyrirgjöf og Gerrard skoraði."
"Að þetta sé fallegasta mark í bikarúrslitaleik allra tíma. Nei takk ! Frekar óheiðalaegasta mark allra tíma.
"Fallegasta mark allra tíma ? Hvað segið þið um frábæran skalla Trevor Brooking sem tryggði okkur 1:0 sigur gegn Arsenal 1980. Í það minnsta var það heiðarlegasti knattspyrnumaður allra tíma sem skoraði markið.
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/