“Get ekki beðið eftir því að sýna hvað í mér býr”

02. október 2007 | 11:04:54
- segir Scott Parker, sem aðeins hefur leikið einn hálfleik á þessu tímabili.

Það er ekki hægt að segja að gæfan hafi leikið við hinum 26 ára Scott Parker síðan hann kom til West Ham í sumar. Eftir að hafa meiðst í æfingaleik í júlí þá varð hann að fara af leikvelli í hálfleik gegn Arsenal þegar hann meiddist eftir fólskulegt brot Fabrages í sínum fyrsta leik og óvíst er hversu lengi hann verður frá í þetta sinn.

 


Kaupin á Scott Parker voru fyrstu kaup sumarsins hjá Alan Curbishley í júní s.l.

Það gekk allt að óskum á undirbúningstímabilinu þar til að hann meiddist í æfingaleik í Austurríki gegn Lazio á síðustu mínútum leiksins.

Þetta var ekki sú byrjun sem ég óskaði mér.\" sagði Parker.\"Ég fann mig vel og var kominn í mjög gott form þegar við fórum í æfingaferð til Austurríkis.

Við æfðum mjög vel í æfingabúðum sem við vorum í Austurríki við erfiðar aðstæður því það gekk yfir hitabylgja og hitinn var yfirleitt yfir 30 stigum. Það var hart barist í leiknum gegn Lazio og ég meiddist á síðustu mínútunni í leiknum, en svona er þetta bara og ég fékk högg á hægra hnéð og ég hef verið frá í tvo mánuði.\"

Það að fá tækifæri til að endurnýja kynnin við Alan Curbishley hjá West Ham var aðalástæða þess að Scott Parker ákvað að yfergefa Newcatle Unitied í sumar.

\"Ég vann með Curbishley hjá Charlton. Hann hreinlega ól mig upp sem knattspyrnumann.\" sagði Parker. \"Ég byrjaði hjá honum sem smástrákur og við upplifðum mjög góða tíma hjá Charlton og ég hlakka virkilega til þess að leika undir hans stjórn hjá West Ham í úrvalsdeildinni. Ekki er það verra að ég þekki mjög marga úr þjálfaraliðinu hjá West Ham en þeir voru nánast allir hjá Curbishley þegar hann var hjá Charlton.\"

Scott Parker yfirgaf Charlton í janúar árið 2004 og gekk til liðs við Chelsea. Það gekk gekk ekki alveg sem skildi hjá honum í herbúðum Chelsea. Hann lék aðeins rúmlega 20 leiki með félaginu áður en hann var seldur áfram til Newcastle United sumarið 2005.

\"Ég hef oft verið spurður að því síðan hvort ég teldi það mistök að hafa farið til Chelsea á sínum tíma. En ég svara því alltaf neitandi. Þegar ég heyrði af áhuga Chelsea þá var það ekki spurning í mínum huga að ganga til liðs við þá til þess að efla mig og styrkja sem knattspyrnumann. Ég var búinn að gera mitt hjá Chalrton og tími til kominn að fara yfir á næta stig. Ég var óheppinn með meiðsli hjá Chelsea og hlutirnir gengu ekki alveg upp. En þrátt fyrir það sá ég ekki eftir neinu. Ég lærði það þar að vera hjá liði þar sem krafan er einföld. Þú verður að vinna nánast hvern einasta leik í hverri viku og það er gríðaleg pressa á öllum þeim leikmönnum sem leika fyrir félagið. Það er stundum auðveldara að að vera neðar í deildinni og hlutirnir fara ekki á annan endann þó nokkrir leikir tapist inn á milli. Þessi lexía sem ég lærði hjá Chelsea á vonandi eftir að koma mér að góðum notum hjá West Ham þar sem liðið stefnir hærra og kröfurnar aukast.

Scott Parker var einn af þeim ungu drengjum sem fóru í fótbolrtaakademíu enska knattspyrnusambandsins í Lilleshall.

\"Þetta var erfitt í byrjun. Ég fór að heiman aðeins 14 ára gamall til að fara í skóla og æfa knattspyrnu í Lilleshall, en það breyttist fljótt ég var allavega að vinna við það sem mér þótti skemmtilegast að gera. Að leika fótbolta.

Það var á öðru ári sínu í Lilleshall sem Scott kynntist konu sinni, Carly og þau eiga núna 3 stráka. Frankie 4 ára, Murphy 2 ára og Sonny 6 mánaða.

Ætli ég hætti ekki upp úr þessu sagði Parker og grínaðist með það að hann væra að koma með heilt fótboltalið ef hann héldi svona áfram.

Hann sagði að konan sín kæmi úr stórri fjölskyldu og ætti fjóra bræður. Þannig að hún er vön því að vera umkringd karlmönnum !.

Scott Parker segir að nú sé takmarkið að ná sér af meiðslunum og komast í sitt besta form og sýna stuðningsmönnum West Ham hvað virkilega í honum býr.


 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun