“Við erum á leið inn í nýtt og spenandi tímabil hjá West Ham

02. október 2007 | 09:34:06

Anton Ferdinand er breyttur maður – á marga vegu.

Þegar hann kom heim til London eftir að hafa tekið þátt í Evrópukeppni landsliða undir 21 árs liða í Hollandi hafði hann látið krúnuraka sig .

“Ég var orðinn leiður á hárinu á mér. Það var orðið allt of sítt og þurfti ég viikulega að vera á hárstofunni, ég var einfaldlega orðinn hundleiður á þessu.” Sagði Anton.

Síðasta keppnistímabil var að mörgu leiti erfitt fyrir Anton. Hann lenti í ýmsum neikvæðum uppákomum sem tengdust næturlífi stórborgarinnar og lenti á síðum slúðurblaðanna.

En þessi ungi og hæfileikaríki knattspyrnumaður segist hafa lært af mistökunum og jafnframt þroskast mikið af mótlætinu.


“Þessir hlutir gerast en þeir gera þig líka staðfastari um að láta slíkt aldrei gerast afur.” sagði Anton.. Margt af því sem birtast á baksíðum götublaðanna var einfaldlega lýgi.

Þetta er í fyrsta skipti sem ég tjái mig um þessa hluti opinberlega. Ég læt þetta ekki draga úr mér kraftinn, þetta er liðið hjá og ég horfi fram á veginn og ætla mér stóra hluti með West Ham í vetur”

Þótt ótrúlegt megi virðast þá á Anton Ferdinand að baki lengstan ferilinn hjá West Ham af þeim leikmönnum sem eru á mála hjá liðinu í dag, en hann skrifaði undir atvinnumannasamning árið 2003.

“Ég hef lítinn áhuga á því að fara í gegnum sömu martröðina og við fórum í gegnum á síðustu leiktíð þegar okkur tókst með ótrúlegum endaspretti að bjarga okkur frá falli þegar allt virtist tapað. En sem betur fór náðum við að bjarga okkur og ég er svo sannarlega reynslunni ríkari sem knattspyrnumaður.

Ég hef gengið í gegnum hæðir og lægðir með West Ham á þessum tiltölulega stutta tíma sem ég hef verið hjá félaginu.

Ég var kominn í leikmannahópinn þó ég ætti ekki fast sæti í líðinu þegar við féllum niður í 1.deild og var einnig í hópnum árið eftir þegar við töpuðum fyrir Crystal Palace í úrslitaleiknum um að komast upp aftur á Millenium leikvanginum í Cardiff.

En ári síðar var ég kominn í byrjunarliðið og þá fóru við brosleitari frá Cardiff eftir sigur á Preston og tryggðum okkur sæti í Úrvalsdeild. Við áttum síðan frábært tímabil meðal þeirra bestu árið eftir, sem endaði með ógleymanlegum úrslitaleik í bikarkeppninni í Cardiff gegn Liverpool, þar sem við vorum óheppnir að tapa í okkar þriðju heimsókn til velsku borgarinnar á jafnmörgum árum.

Ég er sannfærður um að að keppnistímabilið sem nú er nýhafið verði okkur jákvætt. Okkur gekk vel á undirbúningstímabilinu og nýju þrekþjálfararnir Nick Davies og Alex Dyer hafa komið okkur í fínt form og ég hef aldrei verið í eins góðri þjálfun og nú.

West Ham er á leið inn í nýja tíma, þar sem metnaður er aðalsmerki. Ég hef mikinn metnað og félagið hefur það líka í dag. Það er ástæða þess hversu marga nýja og frbæra leikmenn félagið hefur keypt að andanförnu.

Flestir þeir leikmenn sem hafa verið keyptir eru ekki aðeins góðir leikmenn heldur ungir og eiga framtíðina fyrir sér.

Auk þess hafa ungir og efnilegir leikmenn komið úr unglingastarfi okkar sem gætu bankað á dyr aðalliðsins í vetur. Kyel Reid stóð sig mjög vel á undirbúiningstímabilinu. Hann er eldfljótur útherji. Hogan Ephraim sem er ungur framherji sem gæti náð langt, en hann hefur nú verið lánaður til QPR í 3 mánuði. Síðast en ekki síst er það Jack Collison, sem er efnilegur miðjumaður og sem ég vona að fá tækifæri með liðinu í vetur þrátt fyrir alla nýju mennina.

Auk þess að standa sig vel með West Ham í vetur þá vonast Anton eftir því að fá náð fyrir augum Steve McClaren þálfara enska landsliðsins og verða valin í landsliðshópinn í náinni framtíð

“Það hefur alltaf verið draumur minn að leika fyrir enska landsliðið eins og Rio bróðir minn. En auðvitað er þetta undir mér komið að standa mig vel West Ham og sjá svo hvað leiðir af sér.”

Baráttan um sæti í liðinu hjá West Ham hefur aldrei verið harðari og það er auðvitað aðeins af hinu góða. Það þurfa allir að vera á tánum og standa sig til þess að eiga öruggt sæti í liðinu.” Sagði Anton Ferdinand.

Þýtt úr Official Matchday Magazine

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun