
30. maí 2009 | Sigþór B. Eiríksson
Jöfnunarmark Gerrards gegn West Ham 2006 kosið glæsilegasta mark allra tíma í bikarúrslitum - eða svindlaði Liverpool !
Í tilefni af bikarúrslitaleiknum í dag þegar Chelsea mætir Everton á Wembley var kosning í vikunni meðal lesenda breska dagblaðsins Daily Telegraph um hvaða mark væri glæsilegasta mark allra tíma í bikarúrslitaleik. Í fyrsta sæti varð þrumufleygur Steven Gerrard í uppbótartíma í úrslitaleiknum gegn West Ham á Millenium Stadium í Cardiff 2006 og jafnaði þar með leikinn 3:3. Þar að auki var leikurinn tilnefndur af mörgum sem besti og mest spennandi úrslitaleikur allra tíma.
Þrátt fyrir þessar hástemndu umsagnir. Þá er hægt að fullyrða að flestum ef ekki öllum stuðningsmönnum West Ham svíður enn úrslit leiksins. Allir voru sammála um það að West Ham átti skilið að verða bikarmeistari þetta ár. En það er oft lítið sem heitir sanngirni í knattspyrnunni. Þeir voru einfaldlega mun betri aðilinn í úrslitaleiknum. West Ham komst í 2:0 snemma leiks, en Liverpool náði að jafna 2:2, en Konchesky kom West Ham yfir 3:2 áður en markið kom frá Gerrard á fyrstu mínútu í uppbótartíma. Í framlengingunni átti Liverpool nánast ekkert marktækifæri á meðan West Ham fékk tvö dauðafæri til að tryggja sér sigurinn. Í fyrra skiptið varði Pepe Reyna hreinst ótrúlega skalla frá Nigel Reo Coker og svo skaut Marlon Harewood framhjá fyrir opnu marki á lokamínutunum, reyndar orðinn örþreyttur og skaut með vinstri fæti. Öll vitum við síðan hvernig vítapsyrnukeppnin fór
Í skemmtilegri grein á vefmiðlinum "The Game´s gone crazy" er pistlahöfundur (sem reyndar er West Ham aðdáandi) hreint ekki sammála þessari niðurstöðu. Er reyndar sammála því að markið hefði verið ágætt. En Steve Gerrard hafi látið vaða blindandi af löngu færi og haft heppnina með sér. Knötturinn hefði alveg eins getað lent í hornfánanum. Markið og aðdragandi þess hefði frekar átt að vinna til verðlauna sem óíþróttamannslegasta framkoma allra tíma.
Hann segir " Hvernig átti argentínski bakvörðurinn Leon Scaloni hjá West Ham að vita það að á síðustu mínútu leiksins þegar hann var með knöttinn og sendi hann útaf er einn leikmaður Liverpool lá meiddur á vellinum og sýndi þar með íþróttamannslega framkomu Að síðan að leikmenn Liverpool mundu þakka fyrir það með því að þverbrjóta allar leikreglur um heiðarleika í íþróttum. Leikmaðurinn fékk aðhlynningu.Liverpool tók innkastið. Í stað þess að henda knettinum aftur fyrir endamörk West Ham en innkastið var nálægt hornfánanum. Þá kom fyrirliði Liverpool Jamie Carracker til Jan Arne Riise, sem tók innkastið og sagði honum að henda knettinum beint á Scaloni og pressa hann um leið. Riise henti boltanum nánast í Scaloni og hljóp svo beint í hann og fát kom á Argentínumanninn, sem sparkaði knettinum ómarkvasst frá sér til leikmanns Liverpool, sem náði fyrirgjöf og Gerrard skoraði."
"Að þetta sé fallegasta mark í bikarúrslitaleik allra tíma. Nei takk ! Frekar óheiðalaegasta mark allra tíma.
"Fallegasta mark allra tíma ? Hvað segið þið um frábæran skalla Trevor Brooking sem tryggði okkur 1:0 sigur gegn Arsenal 1980. Í það minnsta var það heiðarlegasti knattspyrnumaður allra tíma sem skoraði markið.
23. apríl 2008 | Sigþór B. Eiríksson
Gianluca Nani segir framtíðina bjarta hjá West Ham.
Í ítarlegu viðtali í "The Official Matchday Magazine" nýlega segir Gianluca Nani nýráðinn tæknilegur framkvæmdarstjóri hjá West Ham frá framtíðaráætlunum sínum. Hann er reyndar nú þegar byrjaður að starfa með Curbishley og fór Curbs nýlega til Ítalíu til viðræðna við Nani.
Nani byrjar á því að segja frá sjálfum sér og er hann fæddur í Róm og fékk snemma mikinn áhuga á knattspyrnu og átti sér draum um að verða atvinnuknattspyrnumaður en náði aldrei á þann stall. Í stað þess náði hann sér í þjálfararéttindi og tók að sér þjálfun hjá áhugamannaliðum á Ítalíu og starfaði við það næstu fimm árin. Eftir þessi ár fluttist hann til Spánar og tók m.a að sér að skipuleggja knattspyrnumót fyrir lið frá norður Evrópu. Í kjölfarið fór hann að fylgast með ungum og efnilegum leikmönnum sem komu á þessi mót og kom þeim að hjá liðum á Ítalíu. Þegar hér var komið við sögu bauð Brescia honum starf sem tæknilegur framkvæmdarstjóri og var það fyrir níu árum síðan. "Aðalstarf mitt hjá Brescia var að koma á fót "njósnaneti´" víðsvegar um Evrópu og á Ítalíu til að koma auga á efnilega leikmenn og fá þá til Brescia. Þetta gekk mjög vel því margir mjög góðir knattspyrnumenn hafa komið frá Brescia síðan við byggðum þetta starf upp." sagði Nani
18. mars 2008 | Helena
Vðtal við Nolberto Solano
Nolberto Solano varð fljótlega uppáhald stuðningsmanna West Ham vegna sköpunarhæfileika sinna og glæsilegra spyrna en þetta tvennt hefur gert hann að lykilmanni í sóknarleik West Ham þegar hann spilar með og hann spilar ekki heldur feilnótur utan vallar.
Þegar hann gekk til liðs við West Ham frá Newcastle á síðasta degi sölugluggans í ágúst síðastliðnum kom hann með fleira en hæfileika og leikgleði - nefnilega trompet. Hann yfirgaf ekki bara fótboltalið þegar hann fór frá Newcastle heldur líka hljómsveit sína The Geordie Lations. En hann fann fljótlega nýjan stað til að iðka tónlist sína.
"Um leið og tækifæri til að ganga til liðs við West Ham gafst, tók ég það," segir hinn 33 ára gamli leikmaður. "Það er fínt að fá að spila aftur með félögum mínum frá Newcastle og það er gott að vera nálægt börnunum mínum." Solano á tvö börn Mattias 6 ára og Luana 3 ára. "Ég er ánægður hjá félaginu og þakklátur stjóranum að gefa mér tækifæri. Ég reyni alltaf að gera mitt besta og vinnan er alltaf í forgangi hjá mér. Það skiptir mig meginmáli að vera enn að spila og vera hluti af hópnum."
19. febrúar 2008 | Helena
Viðtal við Matthew Upson
Matthew Upson hefur átt mjög gott tímabil í vetur. Hann hefur skilað frábærum leik fyrir West Ham og verið valinn í landsliðið að nýju.
Það getur svo sannarlega mikið breyst á einu ári. Fyrir 12 mánuðum síðan meiddist Matthew Upson á kálfa í fyrsta leik sínum fyrir West Ham United. Hann var einn af þeim sem voru keyptir í janúarglugganum í fyrra og einn af þeim sem átti að hjálpa okkur að verjast falli. Raunin varð önnur. Hann hafði aðeins leikið í 30 mínútur á Villa Park þegar hann varð að yfirgefa völlinn og við tók erfitt tímabil fyrir þennan hæfileikaríka miðvörð. Hann kom reyndar aftur inn í liðið í mars í leik gegn Tottenham en allt of snemma greinilega því hann lék aðeins 11 mínútur áður en meiðslin tóku sig upp að nýju og hann var ekki meira með það tímabil.
"Ég komst í gegnum þetta af því að ég var sterkur fyrir. Ég var nógu sterkur andlega til að takast á við vandamálið og það var gott fólk í kringum mig sem hjálpaði mér. Ég er mjög ákveðinn og langar nægilega mikið til að gera mitt besta. Ég geri hvað sem ég get til að ná árangri. Ef maður leggur sig fram og gætir þess að gera það sem er rétt þá ganga hlutirnir upp," sagði Matthew Upson .
Þetta hefur heldur betur snúist við hjá honum. Þetta gæti ekki verið betra. Hann hefur leikið hverja einustu mínútu fyrir West Ham í vetur og það er ekki síst honum að þakka að West Ham hefur fengið það orð á sig að vera með bestu vörnina fyrir utan fjóru stóru liðin. Og ekki nóg með það, heldur var hann valinn í landsliðið að nýju eftir þriggja og hálfs árs fjarveru úr hópnum.
15. október 2007 | Sigþór B. Eiríksson
Björgólfur Guðmundsson eigandi West Ham United
Nær að sameina áhugamálin: viðskipti og fótbolta. Aðaleigandi West Ham United og formaður bankaráðs Landsbanka Ísland, Björgólfur Guðmundsson eignaðist West Ham United þegar hann gekk frá kaupunum á félaginu í nóvember á síðasta ári.
Þessi kaup komu þeim sem þekktu til Björgólfs ekkert á óvart. Hann er þekktur fyrir að vilja láta gott af sér leiða á Íslandi, hefur þar verið áhugamaður um menningu og listir og lagt góðum máefnum lið hér á landi eins og allir þekkja og var á síðasta ári kjörinn vinsælasti auðmaðurinn á Íslandi af einum útbreiddasta fjölmiðli landsins.
Þá er Björgólfur þekktur fyrir brennandi áhuga sinn á íþróttum og sér í lagi knattspyrnunni.
| 2. október 2007 | “Get ekki beðið eftir því að sýna hvað í mér býr” |
| 2. október 2007 | “Við erum á leið inn í nýtt og spenandi tímabil hjá West Ham |
Eldri greinar |
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/