
7. janúar 2008 | Sigþór B. Eiríksson
Julien Faubert skoraði eftir 39 sekúndur með varliðinu
Julien Faubert skoraði eftir aðeins 39 sekúndur með varaliðinu í kvöld í leik gegn Aston Villa. Þrátt fyrir glæsilega byrjun tapaði West Ham fyrir Aston Villa 1:2 og skoruðu heimamenn tvívegis á síðustu þremur mínútum leiksins og kom sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins. En Aston Villa er í efsta sæti í varaliðskepninni. En leikurinn fór fram á heimavelli Wallsall, Bescot Stadium, en þar leikur Aston Villa alla heimaleiki sína.
Julien Faubert átti frábæran leik og réðu varnarmenn Aston Villa ekkert við hann, en hann fór af leikvelli í hálfleik og vonandi fáum við að sjá eitthvað til hans gegn Fulham á laugardaginn. Einnig léku Luis Boa Morte, James Collins og Callum Davenport sína fyrstu leiki eftir meiðsli.
Liðið var þannig skipað: Richard Wright, James Tomkins (Jordan Spence 90), James Collins, Calum Davenport, Joe Widdowson, Julien Faubert (Zavon Hines 46), Christian Dailly, Jack Collison, Kyel Reid, Luis Boa Morte (Freddie Sears 63), Jack Jeffrey.
7. nóvember 2007 | Helena
Góður leikur hjá varaliðinu gegn Arsenal
Kevin Keen var ángæður eftir jafntefli gegn Arsenal í gærkvöldi. West Ham lenti tvisvar sinnum undir í leiknum. Jordan Spence og Tony Stokes skoruðu jöfnunarmörkin
"Þetta var frábær leikur þar sem tvö mjög góð og ung lið léku glæsilegan fótbolta, sýndu líkamlegan styrk og leikgleði",sagði Keen og var hinn ánægðasti. "Jafntefli var sanngjarnt, bæði lið hefðu getað unnið en það sem ég er ánægðastur með er að við skulum hafa komið til baka og sýnt karakter."
24. október 2007 | Sigþór B. Eiríksson
Varaliðið: Fulham - West Ham 1:1
Það var Kyel Reid sem tryggði varaliði West Ham jafntefli gegn Fulham á útivelli í gærkvöldi.
Nigel Quashie lék sinn fyrsta leik eftir 7 mánaða fjarveru vegna meiðsla.
Lið West Ham: Stetch, Pantsil, Widdowson, Tomkins, Spector, Quashie, Reid, Stokes (Hales) Collison, Jeffrey, Hines.
11. október 2007 | Sigþór B. Eiríksson
Varalið West Ham vann varalið Tottenham 1:0
9. okt. 2007 West Ham : Tottenham 1:0 Varalið West Ham sigraði varalið Tottenham í gærkvöldi1:0 á Upton Park.
Það var Luis Boa Morte sem skoraði eina mark leiksins með skalla í upphafi leiks.
Leikmenn West Ham voru mun sterkari aðilinn í leiknum og hefðu getað unnið enn stærri sigur.
Lið West Ham: Wright, Pantsil, Tomkins, Davenport, Spector, Stanislas (Hines), Stokes, Collison, Reid, Boa Morte, Jeffrey
1.okt. 2007 Birmingham : West Ham 3:1
Birmingham náði forystunni snemma leiks en hinn 17 ára John Stanilas jafnaði metin fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik tryggði reynslumeira lið Birmingham sér sigurinn. En Hines lét samt verja frá sér víti í stöðunni 2:1
Lið West Ham Walker, Miller, Widdowson, Ngala, Davenport, Stokes, Hales, Collison, Jeffrey, Hines, Reid
Eldri greinar |
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/