10. maí 2010 | Sigþór B. Eiríksson

Luis Boa Morte á förum frá West Ham

Eftir jafnteflisleik West Ham gegn Manchester City 1:1 á Upton Park í gær þar sem Luis Boa Morte skorað mark West Ham á 17.mínútu og Shaun Wright Phillips jafnaði fyrir gestina sex mínútum síðar sagði Boa Morte að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir West Ham. En samningur Boa Morte rennur út í næsta mánuði. Þannig að hann er á förum eftir að hafa misst af öllu keppnistímabilinu vegna meiðsla. En leikur West Ham gegn Manchester City var ekki sýndur í sjónvarpi í gær og þess vegna munum við ekki fjalla sérstaklega um hann að þessu sinni eða fara yfir frammistöðu leikmanna. En gestirnir voru sterkari aðillinn í fyrri hálfleik en West Ham í þeim síðari. Voru þeir Scott Parker og Ilan nálægt því að knýja fram sigur fyrir West Ham í lokin.

Hinn ungi Jack Collison verður frá keppni í níu mánuði eftir að hann fór í uppskurð á hné í síðustu viku. Er hann annar ungi leikmaðurinn sem á við alvarleg hnémeiðsli að stríða. En Zavon Hines fór í aðgerð á hné í september s.l.

Gianfranco Zola á viðtal við þá David Sullivan og David Gold á morgun og ætti þá framtíð hans að ráðast hjá félaginu. Í dag var sagt frá því í Daily Mail að nú væri stjóri Portsmouth Avrant Grant líklegastur til þess að verða næsti stjóri West Ham ef Zola yrði látinn taka pokann sinn.

 

2. maí 2010 | Helena

Enn einu sinni tap á útivelli

Fulham   3   -   2   West Ham United

Fulham landaði sínum fyrsta deildarsigri yfir West Ham í 44 ár á Craven Cottage.

West Ham liðið var óbreytt frá því í síðasta leik en Luis Boa Morte var kominn á bekinn núna en kom ekki við sögu í leiknum

Fyrri hálfleikur var heldur daufur á að horfa og lítið um marktækifæri af hálfu beggja en Fulham voru kannski aðsins sprækari  til að byrja með og Clint Dempsey átti skot þegar á fyrstu mínútu sem Da Costa bægði frá.

West Ham átti þó fyrsta alvöru færi leiksins. Mark Noble skaut að marki sem að Mark Schwarzer varði í horn. Noble tók hornspyrnuna og boltinn fór beint á höfuð Matthew Upson en á einhvern ótrúlegan hátt tókst honum að skjóta fram hjá af mjög stuttu færi.

Og á fertugustu mínútu munaði minnstu að West Ham kæmist yfir þegar Da Costa átti stórglæsilegt skot af 30 metra færi en ennþá einu sinni var Schwarzer vel á verði. 

En á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks komst Clint Dempsey inn í teig og skaut lágu skoti í markhornið fram hjá Robert Green.  1-0

Það er varla hægt að fara inn í hálfleikinn á verri hátt en þetta virtist þó ekki hafa haft áhrif á liðið í byrjun síðari hálfleiks sem byrjaði ósköp svipað og sá fyrri með miðjumoði og miðstökum af beggja hálfu.

Á 55. mínútu átti Fulham hornspyrnu og hefði getað farið illa en Green átti ekki í vandræðum með slakt skot Jonathan Greenings.

En fjórum mínútum síðar voru heimamenn heppnari þegar  sending frá Chris Baird var á leiðinni út af vellinum en boltinn lenti í Carlton Cole og þaðan í netið. 2-0



24. apríl 2010 | Helena

Glæsimark Parkers heldur okkur uppi

West Ham United     3  -   2   Wigan Athletic

Það var virkilega gleðilegt að fá Scott Parker aftur í liðið eftir tveggja leikja bann í þessum mikilvæga leik.

Leikurinn gat varla byrjað verr en hann gerði fyrir West Ham menn því þegar á 4. mínútu komust gestirnir  yfir með sjálfsmarki Jonathan Spector.  Wigan menn áttu hornspyrnu sem Ben Watson tók. Einhver hamagangur var inni í teig (eðlilega) og það var nóg til að Spector var ekki með á nótunum og boltinn fór í öxlina á honum og inn í markið. Sérlega klaufalegt hjá Spector, ekki síst þegar haft er í huga að þetta er hans annað sjálfsmark gegn Wigan. 0-1

En fjórum mínútum síðar virtust heimamenn ætla að laga stöðuna þegar  Carlton Cole komst einn í gegn,fram hjá Kirkland og hafði allan tíma í heiminum en Caldwell átti ekki  í vandræðum með að hreinsa frá fremur kraftlaust skot hans. Verulega slakt hjá Cole í þetta sinn.

Cole kom eitthvað við Kirkland (sem var kominn niður) og hann meiddist í andliti – svo illa að það þurfti að sauma 9 spor í kringum munn hans í hálfleik

Leikurinn fór að miklu leyti fram á miðjunni en Wigan menn voru þó mun meira með boltann og á  30.mín.  átti James McCarthy einstaklega fallegt skot af 35 metra færi en Green varði ekki síður glæsilega og sýndi hvers vegna hann er í landsliðinu.

Það má segja að þessi markvarsla hafi skipt sköpum í leiknum því að heimamenn sneru vörn í sókn og skeiðuðu upp völlinn í fínni sókn sem endaði með að Cole komst upp vinstra megin og gaf einkar fallega sendingu á Ilan. Hann þakkaði pent fyrir og skaut í markið. 1-1

Mjög vel gert hjá þeim báðum.

19. apríl 2010 | Helena

Eins og lömb til slátrunar leidd...

Liverpool   3   -   0   West Ham United

Þetta var afar dapurt kvöld hjá okkar ástkæra félagi og eiginlega má segja að þeir hafi aldrei séð til sólar í leiknum á Anfield.

Strax í byrjun tóku heimamenn öll völd á miðjunni og þeir fengu sitt fyrsta færi þegar á þriðju mínútu.  Þeir léku þá vel upp í  gegnum vörn West Ham en Green var vel á verði svona í byrjun.

Það var fyrrum West Ham leikmaður Yossi Benayoun sem var potturinn og pannan í þessari fyrstu sókn og hann átti eftir að koma meira við sögu í leiknum.

Nokkrum mínútum síðar munaði minnstu að Liverpool skoraði þegar þeir léku enn sem fyrr varnarmenn West Ham illa og komust þrír fríir inn í teig en þrátt fyrir mistök hjá Green tókst þeim einhvern veginn að skjóta fram hjá.

En heppnin var ekki endalaust með West Ham mönnum og á 19. mínútu  tók Gerrard aukaspyrnu frá hægri sem lenti fyrir framan Benayoun. Eftir að Spector gerði misheppnaða tilraun til að koma boltanum frá,fór hann í bringuna á Benayoun og inn í markið.1-0

Í fyrstu virtist hann hafa lagt boltann fyrir sig með handleggnumen í endursýningu sást að markið var löglegt. Og það verður að segja Benayoun til hróss að hann stillti fagnaðarlátum sínum í hóf.

Tveimur mínútum síðar bitu gestirnir aðeins frá sér þegar Carlton Cole átti ágætt skot að marki.  Reina var hins vegar ekki í vandræðum með að verja það.

En þetta var eiginlega það eina sem sást til West Ham því að eftir þetta héldu Liverpool menn áfram að sækja og á 27. mínútu fengu þeir horn sem að Gerard tók.  Kyrgiakos, sem var óvaldaður beint fyrir framan markið skallaði boltann yfir markið á einhvern óskiljanlegan hátt.

En tveimur mínútum síðar fór boltinn aftur í netið eftir afar glæsilega sókn hjá Liverpool þar sem að Yossi Benayoun var enn og aftur í aðalhlutverki. Hann sendi fínan bolta á Maxi sem aftur átti góða fyrirgjöf og Ngog tók hann viðstöðulaust og í netið. Einkar glæsilegt og staðan 2-0

Ngog átti annað færi skömmu síðar og rétt fyrir lok hálfleiksins átti Kuyt skot af 25 metra færi sem Green náði að pota burt með fingurgómunum.

Sem sagt arfaslakur fyrri hálfleikur.

Og ekki batnaði það mikið í þeim síðari.  Reyndar tók Zola Stanislas litla út af en hann átti slakan leik í fyrri hálfleik (eins og reyndar allt liðið). Í hans stað kom Franco inn á.

En ekki var mikilbreyting á leik West Ham manna. Liverpool menn héldu áfram að spila sín á milli og fengu að leika sér með boltann eins og þeir vildu. West Ham menn virtust einna helst vera að bíða eftir að þessari þrekraun lyki og gerðu sig aldrei líklega til að minnka muninn.

Mun sennilega var að heimamenn bættu við mörkum enda sóttu þeir nær stanslaust. Og á 59. mínútu kom markið eftir aðra aukaspyrnu frá Gerard. Kyrgiakos átti fínt skot í stöngina en boltinn hentist á Robert Green og inn í markið. Afar óheppilegt mark. 3-0

Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir að Liverpool ætti að minnsta kosti eitt flott færi enn. Í þetta skiptið fór skot Gerrards í Manuel Da Costa en ekki inn í markið.

Þessi úrslit þýða að Liverpool eygja enn von um Evrópusæti (ekki þó í Meistaradeild) en fátt virðist blasa við West Ham annað en fall – a.m.k. ef þeir ætla að halda áfram að leika svona.

Frammistaða leikmanna:

Í stuttu máli áttu leikmenn West Ham skelfilegan dag. Þeir voru andlausir og án alls baráttuþreks.  Greinilegt var frá fyrstu mínútu að þeir höfðu ekki trú á því að þeir gætu fengið eitthvað út úr leiknum og áttu skilið að tapa – með a.m.k. þriggja marka mun ef ekki meira.

Það var helst að Mark Noble væri að reyna að berjast og Cole átti eina færi West Ham manna í leiknum. Aðrir voru ömurlegir vægast sagt.

10. apríl 2010 | Helena

Mikilvægur sigur gefur von

West Ham United    1   –    0   Sunderland

Ég hef sjaldan verið eins ánægð með að hafa spáð vitlaust eins og eftir þennan leik.

Allir leikir núna eru fallbaráttuleikir hjá West Ham og hvert einasta stig er dýrmætt.

Tvær breytingar á liðinu frá því í síðustu viku.  Parker náttúrulega í banni og í hans stað var Behrami kominn í liðið (þrátt fyrir að í gær hafi hann verið sagður meiddur) og þá var enginn hissa þegar Mido var settur út úr liðinu líka. Í hans stað var markaskorarinn frá því um síðustu helgi Ilan kominn í byrjunarliðið.

Annars staðar var Hull að keppa við Burnley í leik sem skipti West Ham auðvitað miklu máli því þetta voru liðin í næstu tveimur sætum fyrir neðan West Ham. Hull er með leik til góða og því voru úrslit leiksins mjög ánægjuleg fyrir okkur en Burnley vann óvænt 1-4.

Það munaði minnstu að gestirnir kæmust yfir eftir 7 mínútur þegar Steed Malbranque tók ágæta hornspyrnu en Darren Bent  náði ekki  til boltans þar sem hann var á auðum sjó inni í teig.

Á 15. mínútu átti Sunderland got upphlaup sem endaði með að Darren Bent reyndi aðlyfta boltanum yfir Green en (sem betur fer) lyfti hann honum yfir markið líka.

Hálfri mínútu síðar átti West Ham svo sitt fyrsta alvöru skot á markið og var þar að verki Valon Behrami. Skotið var hins vegar beint á Gordon og því ekki mikil hætta.

Liðin skiptust síðan nokkuð á að sækja án þess þó að skapa verulega hættu.

Á 34.mínútu kom skyndisókn hjá West Ham sem rann út í sandinn en Craig Gordon fór út fyrir teig og handlék boltann þannig að West Ham fékk aukaspyrnu og markvörðurinn slapp með aðeins gult spjald. Stanislas tók hana en hún var slök og engin hætta skapaðist.

Eldra efni

4. apríl 2010 Jibbí... loksins stig!
27. mars 2010 Versta taphrina í 43 ár
24. mars 2010 Niðurlæging
20. mars 2010 Fjórða tapið í röð og staðan alvarleg
14. mars 2010 Slæmur dagur

 
Tilkynningar
17. júní 2010

West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park

Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst.  Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.

Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.

Könnun