
27. janúar 2012 | Sigþór B. Eiríksson
Herita Ilunga yfirgefur West Ham.
West Ham tilkynnti í dag að félagið og Herita Ilunga hefðu komist að samkomulagi um starfsloks leimannsins hjá West Ham. Ilunga kom til West Ham árið 2008 frá St. Etienne í Frakklandi,upphaflega að láni en var síðan keyptur til félagsins ári síðar fyrir 3 milljónir sterlingspunda. Eftir frábæra byrjun á fyrsta ári, tók ferill hans dífu niður á við og var í haust lánaður til Doncaster Rovers og er nú farinn frá félaginu eftir að hafa leikið 73 leiki og skorað 3 mörk.
Varalið West Ham lék æfingaleik gegn Gillingham á Upton Park á riðjudaginn. Það var bandaríkjamaðurinn George John, sem nýlega skrifaði undir tveggja mánað lánssamning, sem kom sá og sigraði í leiknum. Hann skoraði mark West Ham með glæsilegu þrumuskoti í 1:1 jafntefli. Matthew Taylor og Gay Demel léku báðir með liðinu eftir meiðsli.
Daily Mail sagði frá því í dag að West Ham hefði boðið tveimur leikmönnum að koma til reynslu hjá félaginu. Þetta eru varnarmaðurinn Roman Torres, sem kemur frá liði í Panama og framherjinn Zlatan Muslimovic frá Bosníu.
Nú styttist óðfluga í að leikmannagluggin svokallaði loki, en það er á miðnætti 31.janúar n.k. Enn er West Ham orðað við framherjanna Jordan Rhodes hjá Huddersfiled og Mikica Jelovic hjá Glasgow Rangers, einnig hefur West Ham verið orðað við Dean Snodgrass hjá Leeds United.
23. janúar 2012 | Sigþór B. Eiríksson
James Tomkins framlengir til ársins 2016
Það voru góðar fréttir sem bárust stuðningsmönnum West Ham á laugardaginn þegar varnarmaðurinn öflugi James Tomkins framlengdi samningi sínum við West Ham um fjögur ár til ársins 2016. Tomkins sem er 22 ára gamall hefur verið einn besti leikmaður liðsins í vetur og höfðu nokkur félög í úrvalsdeildinni sýnt leikmanninum áhuga. En Tomkins sagði við undirritunina að hann ætlaði sér að leika í úrvalsdeildinni en það yrði með West Ham næsta haust.
Sam Allardyce var að vonum ánægður með það West Ham væri núna í efsta sæti í Champiomship deildinni eftir 2:1 sigurinn gegn Nottingham Forest á laugardaginn. Hann sagði að liðið hefði oft leikið betur en aðalatriðið væri að sigra. En athygli vekur að síðustu þrjú mörk West Ham hafa öll komið úr vítaspyrnum og hafa þær fært liðinu sex stig.
Framherjum West Ham hefur gengið ílla að skora mörkin að undanförnu og hafa þeir Carlton Cole og Sam Baldock ekki skorað síðan að Cole skoraði gegn Birmingham City á annan í jólum. Fjölmiðar hafa verið uppfullir af fréttum um hugsanleg kaup West Ham á framherjum. Enda hefur Sam Allardyce sagt að nú í janúar væri í algjörum forgangi að fá framherja til liðs við félagið. En þrátt fyrir tilboð í nokkra leikmenn hefur það ekki gengið eftir ennþá og nú er aðeins rúm vika þar til leikmannamarkaðurinn lokar 31.janúar n.k. Vitað er að tilboð í Jordan Rhodes hjá Huddersfield og Kebe hjá Reading hefur verið hafnað. Um helgina var sagt frá því að West Ham hafi átt í viðræðum við Glasgow Rangers um hugsanleg kaup á króatíska framherjanum Nikica Jelavic, en talið er að Liverpool hafi einnig áhuga á framherjanum.
Unglingalið West Ham tapaði fyrsta leik sínum á nýju ári þegar þeir töpuðu 1:2 gegn Crytal Palace á útivelli á laugardaginn
22. janúar 2012 | Helena
Í efsta sætið
West Ham United 2 - 1 Notthingham Forest
West Ham situr nú eitt á toppi fyrstu deildarinnar eftir nauman sigur á Nottingham Forest á laugardag – a.m.k þangað til á mánudag en þá leikur Southampton gegn Leicester.
Þetta var nú samt ekki sérlega sannfærandi hjá okkar mönnum því einu mörk heimamanna komu úr vítaspyrnum.
Það verður þó ekki tekið af Mark Noble að hann er með allra öruggustu vítaskyttum og brást ekki bogalistin í hvorugt skiptið.
Allardyce virtist þó vera eitthvað aðeins að reyna að sækja meira en oft áður – að minnsta kosti lék hann nú með tvo framherja í 4-4-2 kerfi en allt kom fyrir ekki og liðið í fallbaráttunni sótti meira en liðið sem virðist á leið upp í úrvalsdeild.
Það jákvæðasta við þennan leik (fyrir utan stigin þrjú auðvitað) er það að West Ham skuli getað knúið fram sigur þrátt fyrir að eiga lélegan leik og heilladísirnar virðast nokkuð staðránar í að hjálpa okkur aftur heim – í úrvalsdeildina. Annað mjög jákvætt í vikunni var að James okkar Tomkins hefur samið við West Ham til 2016 – mjög gleðilegt þar eð bæði Newcastle og Tottenham hafa verið á höttunum á eftir honum. Og hann sýndi oft góðan varnarleik í þessum leik og má segja að töluvert hafi hvílt á honum og öðrum varnarmönnum West Ham fyrstu 60 mínútur leiksins eða allt þar til seinni vítaspyran var dæmd.
Annars var megn óánægja á vellinum með leik liðsins enda ekki að furða þegar fyrsta skot heimamanna á rammann kom ekki fyrr en á 36. mínútu – fínt skot frá Collison sem Lee Champ varði vel. Diop meiddist seint í fyrri hálfleik og þurfti að hætta leik. Í hans stað kom Henri Lansbury sem var einmitt sá sem sendi boltann á Collison rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins. Collison sendi síðan boltann í hönd (að því er virtist) Guy Moussi og dómarinn dæmdi vítaspyrnu, heimamönnum til mikillar gleði og eins og áður sagði klikkaði Noble ekki fremur en fyrri daginn.
Síðari hálfleikur spilaðist svipað og sá fyrri – Forest menn virtust mun ákveðnari og sóttu meira en heimamennirnir. Þeir áttu skot yfir markið og Green þurfti tvisvar að sýna hve góður markmaður hann er til að bjarga þvi að gestirnir jöfnuðu metin og einu sinni bjargaði McCartney á línu.
Greinilegt var að Sam ætlaði ekki að taka neina sénsa (frekar en oft áður) og í síðari hálfleik var hann aftur kominn í 4-5-1. Samt áttu þeir einhver færi, Collison skaut yfir og Camp bjargaði skoti frá Lansbury.
Það var síðan á 62. mínútu að síðari vítaspyrnan var dæmd. Aftur var það hendi á varnarmann Forest innan teigs en í þetta sinn var það Christ Gunther og heldur augljósari dómur núna. Enn þá var það hinn mjög svo öruggi Mark Noble sem setti boltann í netið.
Forest menn virtust slegnir út af laginu og West Ham menn stjórnuðu leiknum eftir þetta og spiluðu jafnvel fótbolta á köflum. Noble átti þrumuskot fram hjá markinu og Camp varði glæsilega frá Baldock en náði ekki að halda boltanum og Collison náði frákastinu en skaut langt fram hjá fyrir opnu marki.
Hinn ungi Robert Hall kom inn á þegar 15 mínútur voru til leiksloka og hann átti ágætisskot að marki sem Camp sló yfir.
En Forest náði að setja einn bolta inn með svo að segja síðustu spyrnu leiksins. Það var McGugan sem átti sannkallað þrumuskot af 25 metra færi sem Green átti ekki möguleika á að verja.
West Ham byrjaði á miðju og dómarinn flautaði leikinn af.
Þetta verður varla eftirminnilegur leikur fyrir nokkurn mann – en við unnum og við erum í efsta sæti – er nokkur ástæða til að vera að kvarta?
20. janúar 2012 | Helena
West Ham United - Nottingham Forest: Spá
Laugardaginn, 21. janúar, kl. 15.00
West Ham tekur á móti hinu fornfræga liði Nottingham Forest núna á laugardaginn.
West Ham stendur heldur betur að vígi í gegnum tíðina og hafa unnið 35 leiki af 56 en tapað 11. Af síðustu 6 leikjum hafa okkar menn unnið fjóra og gert eitt jafntefli þannig að tölfræðin a.m.k. er okkar megin.
West Ham hefur gengið vel í síðustu heimaleikjum og aðeins tapað einum af síðustu 6 og gert eitt jafntefli. Forest aftur á móti hefur aðeins unnið einn af síðustu 6 útileikjum og gert eitt jafntefli.
West Ham er sem fyrr í næstefsta sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Southampton í því efsta en lakari markamun. Nottinham Forest hins vegar er í fallsæti eða þriðja neðsta sæti deildarinnar með 24 stig eða meira en helmingi færri stig en West Ham sem er með 50 stig.
Það er nokkuð ljóst að þetta er algjör skyldusigur hjá Lundúnaliðinu og kannski er núna komið að því að þeir sýni hvað í þeim býr og sæki af einhvjum krafti. Ég hef þó frekar trú á að Allardyce reyni að sigla varlega og spái naumum sigri. Spá: 1-0
Eldra efni| 18. janúar 2012 | Joe Dixon fær reynslusamning hjá West Ham. |
| 17. janúar 2012 | George John kemur að láni frá FC Dallas |
| 17. janúar 2012 | Árgjöldin 2010 |
| 15. janúar 2012 | Vítaspyrna gerði út um leikinn |
| 13. janúar 2012 | Portsmouth - West Ham United: Spá |
Eldri greinar |
17. janúar 2012
Árgjöldin 2010
Kæru félagsmenn.
Nú er nýtt keppnistímabil hafið og voru væntingar okkar stuðningsmanna West Ham nokkuð bjartar. Nýr stjóri Avram Grant hefur bætti við nýjum leikmönnum í hópinn og enginn lykilmaður var seldur. Þannig að væntingar voru nokkuð góðar. En því miður hefur gengið ekki orðið skv. væntingum. En að sjálfsögðu vonumst við eftir betri tíð og áframhaldandi veru okkar ástsæla liðs í efstu deild. Það er nóg eftir af mótinu ennþá.
Starfsemi West Ham klúbbsins á Íslandi hefur verið haldið gangandi með fréttum og tilkynningum á heimasíðu klúbbsins whufc.is
Við munum að sjálfsögðu halda þvi áfram með fréttum og umfjöllun um leiki á heimasíðunni og reyna að gera enn betur. Í raun hefur fréttaflutningur á heimasíðunni verið eina starfsemi klúbbsins. Ýmislegt kemur til, m.a. vegna gengi íslensku krónunnar hefur ekki verið grundvöllur að efna til hópferðar á Upton Park og áhugi verið takmarkaður m.a vegna mikils kostnaðar sökum gengisins. Af sömu ástæðu hefur verið óhagstætt að kaupa vörur að utan. En vonandi fer að rétta við í efnahagsmálunum og við getum fyrr en síðar staðið fyrir ferð á Upton Park.
Við höfum aðgang að miðum fyrir félagsmenn á Upton Park og ef þið eruð á ferðinni ytra og verðið í sambandi tímanlega þá gætum við útvegað miða. Sendið beiðnir á netfangið sigthorbe@simnet.is og við verðum í sambandi. Einnig er á heimsíðu okkar tenging á Icelandair sem eru með góða ferðapakka á leiki á Upton Park.
En við erum ákveðin í því að efna til hittings af og til á Players í vetur á West Ham leiki. En samningur er við Players um aflátt af veigum á staðnum og er nægjanlegt að sýna gamla félagsskirteinið og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér það.
Á síðasta ári voru félagsgjöld ekki innheimt og var ástæðan sú að við áttum fyrir gjaldinu sem greiða þarf fyrir að halda úti heimasíðunni. Við eigum einnig fyrir gjaldinu nú í ár. Bæði vegna félagsgjaldanna og auglýsinga sem eru á heimasíðunni. En árgjaldið fyrir að halda úti heimsíðunni er ca kr 140.000 á ári.
En við leitum nú til ykkar kæru félagsmenn um að greiða árgjald í klúbbinn kr 1.500 fyrir árið 2010 og mnum við líta á það sem greiðslu til að halda út heimasíðunni fyrir árið 2011. Einnig munum við senda ykkur ný félagsskirteini þegar þið hafið greitt.
Í sparnaðarskini munum við ekki senda út greiðsluseðla í pósti. Greiðsluseðlar munu birtast í netbönkum ykkar og hægt er að greiða þar. En þeir sem ekki eru með netbanka geta greitt inn á reikning okkar 0186-26-7070 kt 451007-0680
Við í stjórninni erum tilbúin að halda áfram, en nýjar hugmyndir eru alltaf vel þegnar og áhugasamir eru hvattir til þess að vera í sambandi. Netföngin okkar eru á heimasíðunni
Hammers kveðjur
Stjórnin







